Sex ára drengur stakk sig á notaðri sprautunál fyrir utan Kársnesskóla Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 2. október 2017 17:00 Sonur Helgu Hrannar Þórsdóttir stakk sig á notaðri sprautu á skólalóð á föstudag. Helga Hrönn
Nemendur í fyrsta bekk í Kársnesskóla í Kópavogi fundu notaða sprautu á skólalóðinni á föstudag og einn drengur stakk sig á henni. Helga Hrönn Þórsdóttir móðir drengsins segir í samtali við Vísi að atvikið hafi átt sér stað í frímínútum á skólatíma en drengurinn er aðeins sex ára gamall. Hún telur að drengurinn sem var með honum hafi ekki snert sprautuna. „Það var náttúrulega hringt strax í mig og ég fór með hann upp á spítala og þar voru gerðar viðeigandi ráðstafanir eins og blóðprufur og bólusetningar.“Bið eftir niðurstöðum um möguleg smit Sprautan hafði augljóslega verið notuð og svo skilin eftir við skólann. Ekki er vitað hvað sprautan hafði verið lengi á skólalóðinni þegar drengirnir fundu hana. Helga Hrönn segir að þau fái ekki niðurstöðurnar strax um það hvort það hafi orðið einhver smit vegna nálarinnar. „Það eru kannski ekki miklar líkur á því en maður veit það ekki.“ Helga Hrönn er sjálf gjörgæsluhjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum svo hún segist hafa gert sér strax grein fyrir alvarleika málsins en sonur hennar hafi ekki áttað sig á því enda aðeins sex ára gamall. „Hann bar sig mjög vel miðað við aðstæður. Þessu bjóst ég aldrei við að barnið mitt myndi lenda í og var ekki búin að undirbúa mig undir það.”Mikilvægt að fræða Helga Hrönn hafði ekki rætt við drenginn sinn um sprautunálar þar sem hann er svo ungur. „Það er svo margt annað sem við höfum rætt en ekki þetta.“ Hún segir mjög mikilvægt að foreldrar ræði þessa hættu við börnin sín og að starfsmenn í skólum og leikskólum séu líka vel vakandi fyrir þessu. „Þetta er bara alveg hræðilegt og það er mikilvægt fyrir okkur sem foreldra að fræða börnin okkar svo þau lendi ekki í þessu. Starfsmenn skólans þurfa líka að fylgjast með hvað er að gerast í kringum skólann. Þetta getur gerst á fleiri stöðum, á róluvöllum og leikskólum líka. Það er líka mikilvægt fyrir starfsfólkið að fylgjast vel með.“Sprautan sem drengirnir fundu á skólalóðinni.Helga HrönnÍhuga að setja upp öryggismyndavélarBjörg Baldursdóttir skólastjóri Kársnesskóla staðfestir í samtali við Vísi að sprautan hafi fundist á föstudag og segir að málið setji að sér óhug. „Við kemdum alla lóðina á föstudaginn. Við höfum gert allar varúðarráðstafanir og erum núna að möguleikann á því að setja upp myndavélar við skólann. Það er hrikalegt að eiga við þetta og alveg ömurlegt þegar svona kemur upp í umhverfi barna, maður verður alveg brjálaður yfir þessu.“ Hún segir mikilvægt að vera vakandi og að foreldrar ræði þetta við börnin sín. „Það skiptir máli að allir séu á varðbergi því börn eru í eðli sínu forvitin. Eðlilega eru þau að skoða umhverfi sitt en við verðum einhvern vegin að koma í veg fyrir að þau skaði sig á því. Við sendum póst á alla foreldra og báðum þau að ræða þetta við sín börn.“
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira