Björn Bergmann skoraði í öðrum sigri Molde í röð | Viðar hafði betur gegn Ingvari Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. september 2017 18:30 Björn Bergmann er næstmarkahæstur í norsku úrvalsdeildinni. vísir/anton
Björn Bergmann Sigurðarson var á skotskónum þegar Molde vann 2-3 útisigur á Viking í norsku úrvalsdeildinni í dag. Skagamaðurinn jafnaði metin í 1-1 á 12. mínútu með sínu tólfta marki í deildinni. Þetta var annar sigur Molde í röð en liðið er í 4. sæti deildarinnar með 37 stig, einu stigi á eftir Sarpsborg sem er í 3. sætinu. Sarpsborg tapaði illa fyrir Tromsö, 5-0. Aron Sigurðarson sat allan tímann á varamannabekk Tromsö sem er í fimmtánda og næstneðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti. Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn fyrir Brann sem bar sigurorð af Sandefjord, 0-1, á útivelli. Brann, sem hefur unnið fjóra leiki í röð, er í 2. sæti deildarinnar. Ingvar Jónsson varði mark Sandefjord sem er í 6. sætinu. Íslendingaliðið Hammarby fékk á baukinn gegn Malmö í sænsku úrvalsdeildinni. Lokatölur 4-0, Malmö í vil. Arnór Smárason og Birkir Már Sævarsson léku allan leikinn fyrir Hammarby sem er í 10. sæti deildarinnar. Hjörtur Hermannsson kom ekkert við sögu þegar Bröndby gerði markalaust jafntefli við Aalborg í dönsku úrvalsdeildinni.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Enski boltinn Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru eru manneskjur en ekki skotmörk“ Enski boltinn Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Handbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld Stefán Teitur lagði upp sigurmarkið María kom sænsku meisturunum í bobba en þær björguðu sér Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Diljá þurfti aðeins þrjár mínútur til að leggja upp mark Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt Rekinn úr íranska landsliðinu David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold FIFA refsar Ísraelum en þó aðeins með sekt Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Freyr stýrði Brann inn í undanúrslit bikarsins Nottingham Forest og Crystal Palace fóru bæði áfram Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Foringinn fagnar endurkomu Norður-Kóreu á HM „Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Messi kominn í 900 mörk Sögulegur samningur Víkinga Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Sjá meira