Losað um framdekk á reiðhjólum í Hafnarfirði Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 10. september 2017 07:00 Ólöf segist þakklát fyrir að ekki fór verr.
Losað var um framdekk á barnahjólum í Vallarhverfinu í Hafnarfirði í síðustu viku. Framdekkið fór svo undan hjólunum þegar þau var á ferð. Tvær mæður hafa sagt frá slíku atviki í Facebook hóp hverfisins en synir þeirra steyptust fram fyrir sig á götuna þegar dekkið fór af hjólinu. Talið er að hjólin hafi hugsanlega verið skemmd á skólalóð Hraunvallaskóla. „Dekkið skoppaði af þegar hann var að fara niður af gangstétt. Hann datt fram fyrir sig og skrámaðist á báðum olnbogum,“ segir Ólöf Haraldsdóttir móðir annars drengsins sem varð fyrir þessu. Hún segir að þetta sé ekkert annað en líkamsárás og skemmdarverk. Ólöf segir að á dögunum hafi líka verið hleypt loftinu úr dekkjum á öllum reiðhjólum fyrir utan blokkina sem þau búa í. Alls voru það fimm reiðhjól. „Ég er búin að láta kíkja á hann og tilkynna þetta til lögreglu,“ segir Ólöf en hún hefur einnig látið skólann vita af málinu. Lögreglan í Hafnarfirði kannaðist við málið en sagði erfitt að gera eitthvað í þessu þegar svo lítið af upplýsingum væru til staðar. Það yrði þó kannski gert ef mörg svona mál kæmu á borð lögreglu „Farið til öryggis yfir hjól barna ykkar áður en þau fara út á þeim svo að fleiri lendi ekki í þessu,“ segir Ólöf en hún þakkar fyrir að ekki fór verr í þeirra tilfelli. Maður sem var á gangi þegar sonur hennar datt hjálpaði honum að hringja heim.Annar drengurinn lenti á olnbogunum en hinn meiddist í andliti, á hné og á öxl.Ólöf Haraldsdóttir„Síminn hans virkaði ekki því símkortið datt úr sambandi við höggið. Hann er 11 ára, hann var svolítið smeykur eftir á. Hann hefur ekki farið aftur að hjóla. Við ætlum að yfirfara hjólið betur. Það er sveif á dekkinu sem hefur verið losuð. Þetta hefði getað farið mun verr, hann lenti ekki á höfðinu sem betur fer, en skautar svona á olnbogunum,“ segir Ólöf í samtali við Vísi. Hinn drengurinn rispaðist í framan og á hné og bólgnaði upp á hné og öxl. Ekki er vitað nákvæmlega hvar hjól drengjanna tveggja voru skemmd en þeir höfðu báðir farið á hjóli í skólann. Lars Jóhann Imsland skólastjóri í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði segir í samtali við Vísi að ekki séu öryggismyndavélar á allri skólalóðinni en það standi til að bæta úr því. „Mig langar líka að það komi fram að það sé mikilvægt fyrir foreldra að ræða við börnin sín um hvað þetta er hættulegt,” segir Ólöf að lokum.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira