Rannsókn lögreglu á skammbyssumálinu í Hafnarfirði að ljúka Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. ágúst 2017 11:11 Maðurinn á myndinni er sá sem talið er að hafi verið ógnað með skammbyssu við Ölhúsið í Hafnarfirði fyrr í mánuðinum. mynd/lögreglan
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á svokölluðu skammbyssumáli sem kom upp í Hafnarfirði fyrr í mánuðinum er að ljúka. Að minnsta kosti þrír menn hafa verið handteknir í tengslum við málið en enginn hefur sætt gæsluvarðhaldi vegna þess. Lögreglan telur að manni hafi verið ógnað með skammbyssu við Ölhúsið í Hafnarfirði síðdegis föstudaginn 18. ágúst. Tveir menn voru handteknir daginn eftir í Borgartúni af sérsveit ríkislögreglustjóra en hvorugur þeirra var sá sem lögreglan taldi að hefði verið með byssuna. Maðurinn sem grunaður er um það var því handtekinn í aðgerð sérsveitarinnar og lögreglu í Hafnarfirði í liðinni viku. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu. Þá óskaði lögreglan eftir því á þriðjudag í síðustu viku að ná tali af manninum sem ógnað var með byssunni og tveimur dögum síðar óskaði lögreglan svo eftir að ná tali af manni sem staddur var við Ölhúsið klukkan 18:13 föstudaginn 18. ágúst. Kom fram í tilkynningu lögreglu að hann hefði ekið hvítum smábíl á staðinn og í gær tilkynnti lögreglan síðan að maðurinn væri kominn í leitirnar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er maðurinn sá sem talið er að hafi verið ógnað með skammbyssu við Ölhúsið. Ekki er talið að hann og maðurinn sem á að hafa ógnað honum þekkist.
Lögreglumál Tengdar fréttir Handtóku mann í Hafnarfirði Maðurinn tengist máli sem kom upp við Ölhúsið síðastliðinn föstudag. 23. ágúst 2017 15:07 Vilja ræða við mann sem var ógnað með skammbyssu við Ölhúsið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ná tali af manni sem var ógnað með skammbyssu fyrir utan Ölhúsið við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði föstudaginn 18. ágúst um klukkan 18:15. 22. ágúst 2017 16:46 Sérsveitin handtók tvo menn í Borgartúni 19. ágúst 2017 21:15 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira
Handtóku mann í Hafnarfirði Maðurinn tengist máli sem kom upp við Ölhúsið síðastliðinn föstudag. 23. ágúst 2017 15:07
Vilja ræða við mann sem var ógnað með skammbyssu við Ölhúsið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ná tali af manni sem var ógnað með skammbyssu fyrir utan Ölhúsið við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði föstudaginn 18. ágúst um klukkan 18:15. 22. ágúst 2017 16:46