UEFA heldur að Dagný sé nýbökuð þriggja barna móðir Kolbeinn Tumi Daðason í Tilburg skrifar 18. júlí 2017 15:30 Dagný verður í Bandaríkjunum er stöllur hennar spila við Brasilíu. vísir/anton
Fjallað er um Evrópumótið í knattspyrnu á heimasíðu Knattspyrnusambands Evrópu. Þar er meðal annars hitað upp fyrir leik Frakka og Íslendinga sem fram fer í Tilburg í kvöld. Fjórar staðreyndir eru bornar á borð fyrir lesendur en ein vekur athygli hjá þeim sem til þekkja hjá íslenska landsliðinu. Liðin mættust vissulega í fyrsta leik riðilsins á EM 2009 og Frakkar unnu 3-1. Ísland skoraði vissulega fyrsta markið í leiknum. Þá hafa liðin mæst níu sinnum, Frakkar unnið sjö, gert eitt jafntefli og tapað einu sinni. En fjórða staðreyndin er út úr kortinu. Þar segir að Dagný Brynjarsdóttir sé þriggja barna móðir. Ekki nóg með það heldur sé hún að fara að spila á EM aðeins fimm mánuðum eftir að þriðja barn hennar fæddist. Brynjarsdottir er klár í slaginn eftir að hafa eignast sitt þriðja barn fyrir fimm mánuðum. Svo virðist sem blaðamaður UEFA sé ekki aðeins að rugla Dagnýju saman við einn heldur tvo leikmenn íslenska liðsins. Annars vegar Hörpu Þorsteinsdóttur, sem eignaðist sitt annað barn fyrir fimm mánuðum, og Málfríði Ernu Sigurðardóttur sem er eina þriggja barna móðirin í íslenska liðinu. Svo sem ekki leiðum að líkjast fyrir Dagnýju sem verður að öllum líkindum á miðjunni með Söru Björk Gunnarsdóttur í leiknum gegn Frökkum í kvöld.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Körfubolti Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Fótbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Neymar ekki valinn í landsliðið en bæði Thiago og Endrick í hópnum Guðrún áfram í undanúrslitin með Hammarby Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Sjá meira