Þjóðverjar unnu Álfukeppnina Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. júlí 2017 19:53 Stindl fagnar sigurmarki sínu í kvöld. vísir/getty
Þjóðverjar halda áfram að safna titlum í sumar en A-landslið þeirra vann Álfukeppnina í kvöld með 1-0 sigri á Síle í úrslitaleik. Á dögunum varð U-21 árs lið þjóðarinnar Evrópumeistari. Það sem gerir þennan sigur enn merkilegra en ella er sú staðreynd að marga sterka leikmenn vantaði í þýska liðið en það er nóg til af frábærum fótboltamönnum þar í landi. Það var Lars Stindl, leikmaður Borussia Mönchengladbach, sem skoraði eina mark leiksins er hann skoraði í tómt markið eftir ævintýralegan klaufaskap í vörn Síle þar sem aftasti maður missti boltann. Myndbandsdómarar voru enn og aftur í stóru hlutverki í keppninni. Að þessu sinni átti leikmaður Síle að fá rautt spjald í leiknum fyrir olnbogaskot en fékk aðeins gult. Ótrúlegt. Útfærslan af myndbandsdómgæslu hefur fengið falleinkunn á þessu móti. Þess utan var mikill hiti í mönnum í leiknum og mátti litlu muna að upp úr syði á köflum. Eftir öll lætin voru það Þjóðverjar sem stóðu upp sem sigurvegarar. Einu sinni sem oftar.
Fótbolti Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Sjá meira