Hjálpa konum að finna þann eina sanna Misty kynnir 5. júlí 2017 10:15 Misty á Laugavegi 178 selur undirfatnað í miklu úrvali og fjölbreyttum stærðum. Mynd/Ernir
Misty, Laugavegi 178, er 49 ára fjölskyldufyrirtæki sem selur undirfatnað og skó en nýlega bættist við gjafavara á borð við skart, veski og fleira. „Okkar helsta sérkenni er sú gríðarlega reynsla sem býr innan fyrirtækisins. Þá er fáséð þetta breiða vöruúrval sem við bjóðum uppá en við erum með brjóstahaldara með skálum frá A og upp í JJ,“ segir Ragnheiður Ásmundsdóttir hjá Misty.Falleg undir föt í stærðum frá A til JJ.Mynd/ErnirEin stór Misty fjölskylda „Við viljum þó ekki aðeins bjóða upp á gæðaundirföt og góða þjónustu. Við viljum að þær sem koma til okkar í fyrsta skipti upplifi eitthvað alveg nýtt og skemmtilegt, og einnig að fastakúnnarnir okkar upplifi sig sem hluta af Misty fjölskyldunni,“ segir Ragnheiður og bætir glettin við enginkona komi í verslunina og fari þaðan algjörlega óáreitt. „Við viljum fá að sjá hvernig brjóstahöldin fara konunum og langbest er ef við fáum aðeins að þukla,“ segir hún og hlær. „Þetta hljómar kannski pínu perralega en staðreyndin er sú að oft er erfitt að sjá hvort stærðin er hundrað prósent rétt án þess að koma aðeins við.“ Ragnheiður segir konur alltaf taka þessum afskiptum vel ,hlæi og furði sig á því að þær hafi bara ekki kunnað að klæða sig í brjóstahaldara áður en þær komu í búðina.Úrvalið er mikið í Misty.Mynd/ErnirÞurfa ekkert að muna Þegar búið er að fara í gegnum allt ferlið og starfsmenn Misty hafa fundið „þann eina rétta“ fyrir konurnar geta þær látið skrá stærðina, tegundina og merkið í sérstakan lista. „Þá þurfa þær ekki að muna neitt,“ segir Ragnheiður brosandi en um fimm þúsund konur eru þegar á skrá hjá Misty. „Fastakúnnar okkar eru rosalega ánægðir með þetta enda auðveldar þetta konum lífið þegar þær mæta, ég tala ekki um ef þær eru að panta utan af landi. Þá eru makarnir ekki síður glaðir þegar þeir koma til að leita að einhverju fallegu fyrir konuna sína, þá er enginn vandi að finna réttu stærðina.“Gaman er að sjá hvað góður brjóstahaldari getur breytt miklu.Misty mátarar Misty auglýsti í mars eftir Misty máturum á facebooksiðunni Misty.is. Ætlunin var að fá konur til að prófa og sýna ný snið og nýjar vörur. „Þetta var gert til að veita viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu. Við fengum rosalega góða svörun og margar til í að leyfa okkur að dressa sig upp fyrir smá myndatöku. Með þessum myndum viljum við sína hvernig rétt stærð lítur út á alvöru konum svo erum við líka veikar fyrir „fyrir og eftir“ myndum.“Misty er einnig á Snapchat.Virkar á snapchat Misty er einnig á snapchat undir misty.is. „Þar sýnum við vörurnar okkar, erum með smá sýnikennslu og allskonar lausnir,“ segir Ragnheiður glaðega og finnst gaman að sjá hve margir eru þegar fylgjendur verslunarinnar á snapchat. „Það sem gerir vinnuna okkar sérstaklega skemmtilega er hvað viðskiptavinirnir okkar eru duglegir að þakka okkur fyrir þjónustuna og það er mikil hvatning til að gera ennþá betur,“ segir Ragnheiður og bætir við að margt sé á prjónunum í Misty. „Við erum bara að verða sterkari og betri ef eitthvað er.“Magic vörurnar eru mjög vinsælar í Misty.Allar konur geta fundið eitthvað við sitt hæfi.Mynd/Ernir
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira