Geri þetta bara á morgun Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. júlí 2017 07:00 Ég sló garðinn í fyrradag. Ykkur er alveg frjálst að standa upp frá morgunkorninu og klappa augnablik áður en lestri er haldið áfram. Þetta tók sinn tíma að gerast enda hef ég verið haldinn ævintýralegri frestunaráráttu í mörg ár. Formaður húsfélagsins sem einnig er kærastan mín keypti sláttuvél fyrir húsið fyrir einhverjum þremur vikum og fól mér það verkefni að slá garðinn. Sláttuvélin var enn þá ofan í kassa í forstofunni þar til í fyrradag þegar ég loks fór af stað. Mér til varnar ætlaði ég margsinnis að drífa í þessu en hér á Fróni hefur bara ekki hætt að rigna í margar vikur og loks þegar það var þurrt var ég annaðhvort að vinna eða gera eitthvað annað töluvert skemmtilegra en að slá gras. Það sem vakti athygli hjá sjálfum mér var hversu pirrandi það var samt að hafa þetta hangandi yfir mér. Mér fannst það ákveðið elli- og/eða þroskamerki. Að hafa hluti hangandi yfir sér hefur hingað til ekki truflað mig í frestunaráráttunni. Ég skrifaði ótal ritgerðir og hef skrifað upp heilu helgarviðtölin og unnið mörg verkefni nóttu fyrir skil og fram á morgun í staðinn fyrir að gera það í rólegheitum á kristilegum tímum. Þetta er ákveðin unglingaveiki sem seint eldist af manni en batnandi mönnum og allt það. Alltaf þegar ég þarf að tækla svona fullorðinsvandamál fer ég að hugsa um hversu gamall maður er að verða eða hversu gamall manni finnst maður vera að verða. Hvert ár eftir þrítugt er ákveðin pína á meðan maður er enn að sætta sig við að fjarlægjast ungdóminn. En hei, ég á enn eftir að setja saman náttborð sem ég keypti í mars. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Tómas Þór Þórðarson Mest lesið Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun