Undarlegir atburðir við þinglok Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar 13. júní 2017 07:00 Þegar mál eru „keyrð í gegn“ á lokaspretti þingstarfa er allt of algengt að það leiði til ýmiss konar mistaka við lagasetningu. Stundum eru það „tæknileg mistök“ sem þarf þá að laga síðar, jafnvel eftir ábendingar dómstóla. En stundum eru afgreidd mál sem eru óskynsamleg og líkleg til að vinna gegn markmiðunum sem þeim er ætlað að ná. Hættan er sérstaklega mikil þegar um er að ræða mál sem þingmenn kunna hvorki við að gagnrýna né greiða atkvæði gegn. Við síðustu þinglok urðu svo þau merku tíðindi að ríkisstjórnin fór fram á að mál yrði samþykkt um leið og hún viðurkenndi að það væri ekki tilbúið. Þingmönnum var sagt að samþykkja hið ókláraða mál en að því búnu yrði viðeigandi ráðuneyti falið að leysa úr því sem út af stæði. Málið sem um ræðir var frumvarp félagsmálaráðherra um svokallaða jafnlaunavottun. Vitanlega greiddi meirihluti þingmanna atkvæði með málinu því ekki vilja menn hætta á að vera sagðir andsnúnir auknu jafnrétti, óháð því hvort málið stuðlar raunverulega að auknu jafnrétti eða ekki. Það sama á stundum við um frumvörp og fréttir, það er fyrirsögnin sem gildir.Eina málið Frumvarpið átti að vera helsta skrautfjöður Viðreisnar, flokks sem átt hefur heldur erfitt uppdráttar eftir að hann gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn og gaf um leið eftir öll málin sem skömmu áður höfðu verið tíunduð sem ástæður þess að flokkurinn þyrfti að kljúfa sig frá Sjálfstæðisflokknum. Þótt illa gengi með málið var því ekki um annað að ræða, að mati Viðreisnar, en að klára það á einn eða annan hátt. Á sama tíma þurfti Sjálfstæðisflokkurinn aðstoð við að staðfesta skipan Landsréttar. Mestu prinsippmenn þar á bæ voru því fóðraðir á krít og sagt að styðja vottunarmál Viðreisnar eða hafa verra af (kosningar). Þetta var þó ástæðulaus harka í garð gömlu góðu íhaldsmannanna því atkvæði þeirra reyndust óþörf við að koma frumvarpinu í gegn. Ljóst var orðið að vinstri-kerfisflokkarnir myndu stökkva á málið enda gátu þeir ekki verið þekktir fyrir að vera á móti máli sem héti svo góðu nafni. Á tímum ímyndarstjórnmála skipta nöfn miklu meira máli en innihaldið og þegar tekst að setja eitt orð saman úr orðunum jafn, laun og vottun þurfa nútíma vinstrimenn ekki að heyra meira áður en þeir segja BINGÓ!Innihald frumvarpsins Ýmsir sem láta jafnréttismál sig miklu varða höfðu bent á galla við frumvarpið og að það væri ekki endilega til þess fallið að ná þeim árangri sem að væri stefnt. Þeir sem sjá um jafnlaunastaðalinn sem styðjast átti við bentu á að hann væri hannaður sem valfrjálst verkfæri en ekki sem kvöð. Greinargerð með frumvarpinu er mögnuð lesning og virðist lýsa þrám stjórnlyndra kerfiskarla fremur en vonum frjálslyndra jafnréttissinna. Það er þó utan við meginefni þessarar greinar sem snýst um þá furðulegu atburði sem gerðust eftir að Viðreisnarfólk ákvað að málið yrði að fara í gegn á fyrsta þingi ríkisstjórnarinnar, sama hvernig það liti út. Þó þarf að fylgja sögunni að eftirlitsaðferðin sem til stendur að beita er bæði dýr og íþyngjandi fyrir fyrirtæki án þess að það sé ljóst að hún skili tilætluðum árangri. Sérstakir eftirlitsmenn leika þar stórt hlutverk. „Faggiltir vottunaraðilar“ heita þeir á kerfismáli en þeir munu hafa eftirlit með því að öll skilyrði staðalsins „ÍST 85:2012“ séu uppfyllt. Þegar faggilti vottunaraðilinn mætir á vettvang getur hann krafist hinna ýmsu upplýsinga til að kanna m.a. hvort fyrirtæki séu að meta verðmæti vinnu starfsmanna rétt miðað við staðalinn.Breytingartillögur á elleftu stundu Í tilraun til að keyra málið í gegn á lokasprettinum lagði meirihlutinn til breytingar á frumvarpinu tveimur dögum fyrir þinglok. Lögð var til frestun á gildistöku gagnvart fyrirtækjum (sígild leið þegar menn lenda í vandræðum með frumvörp) en í millitíðinni skyldi lögunum beitt á Alþingi, ráðuneyti og stofnanir. Einnig var bætt inn ákvæði um að birta mætti staðalinn sem allt snerist um opinberlega. Það gerðist eftir að einhverjir fóru að hengja sig í smáatriði á borð við eftirfarandi spurningu: Ef við ætlum að skylda fólk til að vinna eftir sérstökum staðli, eða eiga ella á hættu innrás eftirlitsmanna og refsingar, ættum við þá ekki að leyfa fólkinu að vita hvað felst í staðlinum sem það á að uppfylla? Ef til vill voru einhverjir þingmenn líka forvitnir um hvað fælist í staðlinum sem þeir áttu að lögfesta. Hugsa sér að á árinu 2017 séu menn enn að lenda í því að afskiptasamir þingmenn krefjist þess að fólk sé upplýst um hvað felist í lögunum sem því er ætlað að fylgja.Lokadagurinn Þegar stóð svo til að klára málið með breyttum tímasetningum og að viðbættri heimild til að upplýsa borgarana um hvaða reglum þeir yrðu dæmdir eftir kom babb í bátinn: Staðlaráð Íslands, sem heldur utan um jafnlaunavottunarstaðalinn - ÍST 85:2012 sem til stóð að lögfesta, upplýsti löggjafann um að staðallinn væri höfundarréttarvarinn og óheimilt að birta hann eða nota í leyfisleysi. Ráðherrann sagði þá Staðlaráði að það væri opinber stofnun og sem slík ætti hún ekki staðalinn né réði hvernig með hann væri farið. Staðlaráð var hins vegar ekki reiðubúið að votta skoðun ráðherrans. Ráðið væri alls ekki opinber stofnun og ætti því víst staðlaðan einkarétt. Deilur milli Staðlaráðs, ráðherra, ráðuneytis og lögmanna héldu áfram án þess að þær leiddu til niðurstöðu um hvort Staðlaráð væri stofnun eða hvort það hefði fundið upp staðalinn eða ætti hann eða hvort ríkið hefði heimild til að upplýsa almenning um hvað til stæði að leiða í lög. Kaldhæðni málsins var sú að þingmenn Pírata voru duglegastir að minna á að staðallinn kynni að vera höfundarréttarvarinn. Þó er óviðeigandi að grínast með aðkomu Pírata að málinu því þeir stóðu sig öðrum betur við að draga fram helstu staðreyndir þess, ekki hvað síst varðandi hagsmuni ríkisins og gagnsæi í lagasetningu.„Reddingin“ Nú voru góð ráð dýr, reyndar mjög dýr og enn er ekki vitað hversu dýr þau verða því niðurstaðan varð sú að samþykkja lög um jafnlaunavottun þar sem velferðarráðuneytinu var falið að semja við Staðlaráð um heimild til að nota staðalinn. Það er sem sagt búið að festa í lög að notast skuli við tiltekinn staðal áður en ríkið semur um hvað það eigi að greiða fyrir staðalinn. Ríkið hefur líklega sjaldan gengið til samninga með eins laka samningsstöðu. Það hlýtur líka að vera einsdæmi að ríkið setji lög sem rústa eigin samningsstöðu. …og þó, ég man eftir öðru dæmi. Hið nýja ákvæði um birtingu staðalsins var fjarlægt úr frumvarpinu. Niðurstaðan varð því sú að þingið samþykkti lög þar sem leynd hvílir yfir því hvað felst í lögunum og óljóst er hvað þau koma til með að kosta. Þá er ekki allt upp talið því staðlar eins og jafnlaunastaðallinn taka breytingum eftir aðstæðum. Það verður því ekki annað séð en að með lögfestingu tiltekins staðals sé Alþingi að gera tilraun til að fela þeim sem munu þróa staðalinn löggjafarvald.Kerfið fékk sitt Þetta er það sem gerist þegar ímyndarstjórnmál og kerfisræði koma saman. Viðreisn taldi sig þurfa að fá alla vega eina fjöður í hattinn þótt það ætti eftir að semja um hvað hún kostaði. Aðrir kunnu svo ekki við að vera á móti máli með góðan tilgang. Kerfinu var því falið að semja frumvarpið, semja um notkun, leyfi og greiðslur og framfylgja svo málinu eftir eigin uppskrift. Hjá fulltrúum kerfisins virðist afstaðan skýr, a.m.k. hjá sumum. Embættismaður sem vann að frumvarpinu sá t.d. ástæðu til að birta á facebook nöfn þeirra sem brutu gegn kerfisræðinu með því að leyfa sér að sitja hjá eða greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Meirihluti þingmanna slapp þó við þá „skömm“ með því að styðja málið þótt margir hafi nefnt að þeir gerðu það þrátt fyrir mikla galla vegna þess að það væri skref í rétta átt. En er það skref í rétta átt þegar unnið er að góðum málstað með skaðlegri aðferð? Ef það eitt að markmiðið sé gott á að nægja til að þingmenn samþykki mál, óháð aðferðinni, er voðinn vís. Allar öfgar og kreddur eru réttlættar með tilvísun í góðan málstað. Framfarir byggjast hins vegar á því að unnið sé að góðum málstað með góðum aðferðum. Höfundur er alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Mest lesið Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir Skoðun Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman Skoðun Halldór 14.06.2025 Halldór Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson skrifar Skoðun Versta sem gæti gerzt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason skrifar Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Skoðun Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar
Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar
Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun