Tæplega áttræð kona á Selfossi gekk þrastarunga í móðurstað Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 5. júní 2017 20:54 Sigrún Gunnlaugsdóttir bjargaði þrastarunga sem datt úr grenitré í garðinum hjá henni. Vísir
Fallegt samband hefur myndast á milli tæplega áttræðar konu á Selfossi og þrastarunga sem datt úr hreiðri sínu. Sigrún Gunnlaugsdóttir bjargaði unganum áður en kettirnir náðu honum en hann býr nú við gott atlæti á heimili hennar og er fóðraður á ánamöðkum. Sigrún Gunnlaugsdóttir, eða Rúna eins og hún er alltaf kölluð, býr við Suðurengi 1 á Selfossi. Hún fann ungann nýlega, sem var alveg ósjálfbjarga fyrir neðan grenitré hjá henni, en hann hafði dottið úr hreiðri í trénu. Rúna fór strax að hlúa að unganum, fór með hann inn til sín og nú eru þau bestu vinir. „Ég er bara í því að tína ánamaðka, það hefur bjargað mér vætan að þeir eru svo mikið á stéttinni, hann étur orðið svo mikið,“ segir Rúna með ungann í fanginu. En hvað ætlar Rúna sér með ungann? „Ég get sleppt honum þegar hann getur flogið almennilega. Ég er farin að kenna honum það að taka maðk af jörðinni, það er byrjað að koma á hann stél.“ Rúna tínir ánamaðka í ungann á lóð sinni og á gangstéttum. Þegar hún er ekki að sinna honum er hann í kassa á eldhúsgólfinu. Hún segir umönnun ungans nokkra fyrirhöfn. „Hann er farinn að snyrta sig. Ég verð að kenna honum það, ekki gerir mamma hans það.“
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Sjá meira