Tóku Elmar af velli og liðið fékk á sig jöfnunarmark rétt fyrir leikslok Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. maí 2017 18:57 Theódór Elmar Bjarnason. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Theódór Elmar Bjarnason og félagar hans í AGF voru aðeins örfáum mínútum frá því að vinna mikilvægan útisigur í baráttunni um að halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. AGF varð hinsvegar að sætta sig við 2-2 jafntefli á útivelli í fyrri leik liðanna í umspili um að halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni. Theódór Elmar var tekinn af velli tíu mínútum fyrir leikslok og það var heldur afdrifarík skipting því heimamenn náðu að jafna metin eftir að Íslendingurinn var sestur á bekkinn. Jung-Bin Park kom Viborg í 1-0 strax á 10. mínútu en Morten Duncan Rasmussen jafnaði fyrir AGF aðeins fimm mínútum síðar. Kasper Junker kom AGF í 2-1 á 68. mínútu og það leit út fyrir að það mark ætlaði að verða sigurmarkið í leiknum þegar Serge Deble jafnaði metin fyrir Viborg á 89. mínútu leiksins. Þetta eru alls ekki slæm úrslit fyrir AGF-liðið en liðið var aðeins nokkrum mínútum frá því að stíga stórt skref í átt að því að bjarga sér frá falli úr deildinni. Það lið sem hefur betur í þessum tveimur leikjum er öruggt með sæti sitt í deildinni en tapliðið þarf að fara í umspilsleiki á móti liði b-deildinni. Björn Daníel Sverrisson var ekki með í þessum leik þar sem að hann tók út leikbann fyrir of mörg gul spjöld. Björn Daníel ætti aftur á móti að geta hjálpað liðinu sínu í seinni leiknum.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira