Skellurinn á móti Hollandi sannfærði Frey um að breyta um leikkerfi fyrir EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2017 15:30 Sara Björk Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir í baráttunni í leiknum á móti Hollandi í apríl. Vísir/Getty
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gaf það út á blaðamannafundi í dag að hann ætlar að breyta um leikkerfi hjá íslenska liðinu og spila 3-4-3 kerfið á EM í Hollandi í júlí. „Þetta kerfi hentar okkur miklu betur út frá leikmannahópnum," sagði Freyr Alexandersson við blaðamenn á fundinum í dag en þar tilkynnti hann leikmannahóp sinn fyrir vináttuleiki á móti Írlandi og Brasilíu í byrjun næsta mánaðar. Íslenska stelpurnar fengu stóran skella á móti Hollandi í aprílmánuði þegar liðið tapaði 4-0 á móti gestgjöfum EM í sumar en Freyr lét liðið þá spila leikkerfið 4-2-3-1. Freyr er búinn að fara vel yfir þann leik en öll tölfræði íslensku stelpnanna úr leiknum í apríl lítur mjög illa út fyrir íslenska liðið. Tapið stóra og tölfræðin sannfærði Frey um að breyta um kerfi og hann hefur nú ákveðið að spila 3-4-3 í komandi vináttuleikjum gegn Írlandi og Brasilíu sem og á Evrópumótinu í Hollandi í sumar. „Við höfum verið að fikta með þetta kerfi síðan í Kína í október í fyrra. Við höfum náð að þróa það í þessum þremir til fjórum leikjum sem við höfum spilað. Þegar við sækjum þá viljum við vera í 3-4-3. Þegar við pressum þá erum við í 3-4-3. Þegar við verjumst dýpra á vellinum þá erum við í 5-3-2 eða 5-4-1,“ sagði Freyr meðal annars á blaðamannafundinum.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira