Meiddu mennirnir að snúa aftur hjá Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2017 14:30 Paul Pogba á æfingunni. Vísir/Getty
Manchester United spilar mikilvægan leik á móti Celta Vigo á morgun þegar liðin mætast í fyrri leik sínum í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Nú eru aðeins þrír leikir í Meistaradeildarsæti. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur þurft að glíma við mikil meiðsli hjá sínum leikmönnum að undanförnu en það var ánægjuleg sjón sem blasti við stuðningsmönnum United á æfingu í dag. Meiddu mennirnir Eric Bailly, Paul Pogba, Chris Smalling og Phil Jones tóku allir þátt í æfingunni en sem dæmi hafa þeir Chris Smalling og Phil Jones misst af níu leikjum, annar tábrotnaði en hinn meiddist á hné. Paul Pogba, dýrasti knattspyrnumaður heims, hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna vöðvatognunar og Bailly fór meiddur af velli á móti Swansea um helgina. Luke Shaw var hinsvegar hvergi sjáanlegur enda munu meiðsli hans sennilega halda honum frá fótboltavelli í nokkra mánuði. Manchester United tryggir sér sæti í Meistaradeildinni með sigri í Evrópudeildinni og það er því mikið undir fyrir enska liðið í þessari keppni. Leikurinn á morgun fer fram á heimavelli Celta Vigo en viku síðar mætast liðin á Old Trafford.Chris Smalling testing his knee out pic.twitter.com/F4ZBylBuik— Simon Stone (@sistoney67) May 3, 2017 So Bailly, Pogba, Smalling and Jones all training @ManUtd this morning. pic.twitter.com/gCT659aChK— Simon Stone (@sistoney67) May 3, 2017
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Fleiri fréttir Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Sjá meira