Brynjar víkur úr forystusæti við meðferð Búnaðarbankaskýrslu Heimir Már Pétursson skrifar 4. apríl 2017 20:15 Brynjar Níelsson. Vísir/Vilhelm
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir að það geti haft óheppileg áhrif á störf nefndarinnar til framtíðar ef nefndarmenn megi ekki hafa tengst hópum eða málum áður en nefndin taki þau til meðferðar. En meirihluti nefndarinnar hefur ákveðið að hann stýri ekki vinnu hennar um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um einkavæðingu Búnaðarbankans. Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í morgun var ákveðið að Brynjar Níelsson formaður nefndarinnar stýrði ekki vinnunni á yfirferð nefndarinnar á skýrslunni um einkavæðingu Búnaðarbankans. Þetta er ekki algengt en þó ekki einsdæmi.Í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Svandísi Svavarsdóttur þingflokksformanni Vinstri grænna, sem situr í nefndinni, að hún telji að það færi betur á því að einhver annar en Brynjar leiddi vinnuna í nefndinni. Ástæðan væri að hann hafi verið verjandi Bjarka Diego þegar sakamál tengd Kaupþingi voru til rannsóknar hjá Sérstökum saksóknara. Svandís segist aldrei hafa notað orðið „vanhæfi“ enda sé það hvergi haft eftir henni í fréttinni. Fyrirsögnin sé Fréttablaðsins, enda eigi hugtakið ekki við í þessu tilfelli. „Ég vil líka geta þess að ég hef haft samband við háttvirtan þingmann Brynjar Níelsson sem ég hef miklar mætur á og tel að hann valdi því vel að vera formaður nefndarinnar. En við erum sammála um það og meirihluti nefndarinnar er það, að það fari betur á því að annar þingmaður leiði nákvæmlega þessa vinnu,“ sagði Svandís á Alþingi í dag. Jón Steindór Valdimarsson fyrsti varaformaður nefndarinnar og þingmaður Viðreisnar mun því leiða afgreiðslu nefndarinnar á Búnaðarbankaskýrslunni og mótun tillagna um viðbrögð við henni. Birgir Ármannsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sagði á Alþingi í dag að „þingmenn verði almennt ekki vanhæfir til meðferðar mála í þinginu nema það varði fjárveitingar til þeirra sjálfra eins og segi í stjórnarskránni.“ Og raunar verði lögmenn samkvæmt lögum heldur ekki samsamaðir skjólstæðingum sínum í einstökum málum. Ríkisstjórnin hefur aðeins eins manns meirihluta og því mikilvægt fyrir hana að mál séu afgreidd í sátt milli stjórnarflokkanna. Var þetta í sátt á milli stjórnarflokkanna? „Já, já þetta er í fullkominni sátt og engar athugasemdir gerðar við þennan framgang mála. Ég held að þetta sé mjög eðlileg framvinda í málinu,“ segir Jón Steindór. Sjálfum finnst Brynjari það ekki nægjanleg ástæða til að hann stýri ekki þessu starfi að hann varði Bjarka Diego sem lögmaður á sínum tíma. „Nei, sjálfum finnst mér að nú ekki. En ég ætla ekkert að vera að strögla við nefndarmenn með það,“ segir Brynjar. Hann líti ekki á þetta sem vantraust á sig en þingmenn hafi oft tengst málum og hópum sem þeir ræða í fortíðinni. „Við erum kannski komin á dálítið hættulega braut. Ef það er alltaf þannig að einhver sem hefur verið einhvers staðar fyrr á ævinni; að þá geti hann ekki leitt svona starf. Þetta gæti haft óheppileg áhrif á störf nefndarinnar til lengri tíma litið,“ segir Brynjar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vinnur framhald málsins samkvæmt fyrirmælum í þingsályktunum frá 2012 og frá því í fyrra og skoða hvort tilefni sé til frekari spurninga og jafnvel rannsókna. „En við munum skila skýrslu um skýrsluna og gera Alþingi grein fyrir okkar niðurstöðum eða ályktunum sem við drögum af skýrslunni,“ segir Jón Steindór Valdimarsson.
Tengdar fréttir Segir Brynjar vanhæfan eftir störf sín fyrir Bjarka Diego Þingmaður VG telur óheppilegt að Brynjar Níelsson leiði vinnu við umfjöllun um skýrslu rannsóknarnefndar um sölu Búnaðarbankans. 4. apríl 2017 07:00 Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Sjá meira
Segir Brynjar vanhæfan eftir störf sín fyrir Bjarka Diego Þingmaður VG telur óheppilegt að Brynjar Níelsson leiði vinnu við umfjöllun um skýrslu rannsóknarnefndar um sölu Búnaðarbankans. 4. apríl 2017 07:00