Klöpp og mold varð að kjallaraíbúð Íslandsbanki kynnir 9. apríl 2017 20:00 Jóri og Arnar í göngu á Þorbjarnarfelli.
Jórmundur og Arnar eru báðir fæddir og uppaldir á landsbyggðinni, Jóri frá Grindavík og Arnar frá Flateyri. Þeir kynntust í Reykjavík og leigðu saman íbúð þar. Þeir sáu fram á að langan tíma tæki að safna fyrir eigin íbúð samhliða því að greiða leigu og náði Jóri að sannfæra Arnar um að flytja til Grindavíkur, með þeim afleiðingum að Arnar varð ástfanginn af bænum og þeim langar í framtíðarhúsnæði þar. „Ég var búinn að flakka á milli leiguíbúða þegar ég bjó í bænum,“ segir Jóri, en hann flutti fjórum sinnum á þremur árum.Mokuðu út fyrir íbúð Þegar þeir Arnar kynntust ákváðu þeir að búa saman og Jóri flutti til Arnars, sem leigði íbúð af ættingja í Hafnarfirði. Þrátt fyrir að vera heppnir og njóta fjölskylduafsláttar frá almennu leiguverði, sáu þeir fram á að það gæti tekið langan tíma að safna fyrir eigin íbúð. Foreldrar Jóra voru á sama tíma að skipta um húsnæði í Grindavík og var því ákveðið að útbúa íbúð í húsnæðinu fyrir Jóra og Arnar.Arnar og Jóri moka út fyrir íbúðinni.„Við vorum öll fjögur allt síðasta sumar að moka út og græja,“ segir Jóri. En íbúð var gerð frá grunni í húsnæðinu, „þarna var bara klöpp og mold, þegar við byrjuðum. Þetta var gert fyrir okkur, svo að við gætum flutt hingað til foreldra minna,“ segir Jóri. „Eins og er væri ég geðveikt til í að kaupa bara í Grindavík,“ segir Jóri og Arnar játar því. „Arnar er orðinn ástfanginn af Grindavík,“ segir Jóri, sem þurfti aðeins að sannfæra Arnar í fyrra um að flytja úr höfuðborginni. Arnar keyrir þó daglega til vinnu sinnar í Reykjavík og finnst það lítið mál. Draumaeignin væri sérbýli, annaðhvort parhús eða raðhús, þar sem hvor um sig ætti eigið húsbóndaherbergi: Jóri nuddherbergi og Arnar bókaherbergi. Í dag eru þó bara stórar eignir í boði í Grindavík og bíða þeir því rólegir og halda áfram að safna fyrir framtíðarheimili sínu. „Við erum að leggja fyrir, en erum ekki búnir að gera neitt excelskjal, markmiðið er samt að safna í svona þrjú ár,“ segir Jóri.Þetta var saga Jóra og Arnars, hvernig viltu að þín saga verði? Pantaðu ráðgjöf og komdu til okkar og gerðu þitt plan.Greinin er kostuð af Íslandsbanka en hún er hluti af Það er hægt, verkefni bankans um fyrstu kaup á fasteign.
Það er hægt Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira