Þriðja lína Alexander Wang fyrir Adidas innblásin af tíunda áratuginum Ritstjórn skrifar 28. mars 2017 12:00 Nýja línan mun líklegast rjúka út. Mynd/Jeurgen Teller
Samstarf Alexander Wang og Adidas hefur gengið eins og í sögu enda selst allt upp samstundis. Ekki er von á öðru en að sagan endurtaki sig á laugardaginn þegar þriðja línan fer í búðir. Samkvæmt Wang hefur hann klæðst Adidas frá því hann var í grunnskóla. Þá þurfti hann að klæðast skólabúning en í staðinn fékk hann að ganga í strigaskóm sem hann krotaði svo á. Í nýju línunni hefur Wang hannað sína eigin strigaskó, þar á meðal körfuboltaskó. Skórnir úr samstarfinu hafa ávallt slegið í gegn og eru þeir seldir í endursölu á 8.000 dollara á Ebay. Nýja línan samanstendur af venjulegum Adidas vörum frá tíunda áratuginum sem Wang hefur gert upp á sinn einstaka hátt. Herferðin er skotin af ljósmyndaranum Juergen Teller.
Mest lesið Teyana Taylor gefur út líkamsræktarmyndband Glamour Kaia Gerber nýtt andlit Marc Jacobs Beauty Glamour Theresa May mun sitja fyrir í Vogue Glamour Frumkvöðull förðunarkennslumyndbandanna hættir Glamour Sjáðu stuttmyndina Íslenskar Stelpur eftir Ísold Glamour Fimm góð maskara trix Glamour Sonur Sofia Vergara gerist fyrirsæta Glamour Röndótt vor hjá Lanvin Glamour Dress dagsins í anda Stranger Things Glamour Litrík dress Bjarkar Glamour