Um knarrarbringur Óttar Guðmundsson skrifar 21. janúar 2017 07:00 Þegar Menelás kóngur fékk Helenu fögru aftur að loknu Trójustríðinu vildi hann refsa henni á viðhlítandi hátt. Hann dró fram sverðið og hótaði henni lífláti. Helena kastaði þá af sér skikkjunni og beraði brjóstin. Menelás varð svo hugfanginn að hann lét sverðið falla, tók hana í faðminn og fyrirgaf henni. Brjóst kvenna hafa ávallt verið tignuð og jafnvel tilbeðin. Í Ljóðaljóðunum er lofsöngur til brjóstanna og fjölmargar helgimyndir frá miðöldum sýna Jesúbarnið sjúga fagurlega skapað brjóst heilagrar guðsmóður. Gríska gyðjan Artemis er venjulega sýnd með mikinn fjölda brjósta til að leggja áherslu á frjósemi og velsæld. Í Sturlungu er barmfagur kvenskörungur kallaður „knarrarbringa“. Þetta færir okkur heim sanninn um að áhugi á brjóstum er ekkert nýmæli. Fjölmargar konur hafa þungar áhyggjur af stærð brjósta sinna og sköpulagi. Sá kvíði er sambærilegur við ótta karla út af lengd og lögun limsins. Auglýsingaiðnaðurinn gerir út á hin fullkomnu brjóst til að selja bæði bíla og betra líf. Lýtalæknar lifa ágætu lífi á brjóstadýrkun nútímans enda flykkjast konur til þeirra og greiða rúmlega hálfa milljón fyrir hinn fullkomna barm. Aðsóknin eykst stöðugt og yngri konum með hnarreist silíkonbrjóst fer hratt fjölgandi. Nýlega var ung kona beðin að hylja brjóst sín í sundlaug til að gæta velsæmis. Í kjölfarið spratt upp fjörug umræða um kynjamismunun. Af hverju mega karlar vera berir að ofan en konur ekki? Brjóstin eru ekki kyntákn. Þetta er skemmtilegt sjónarmið sem gengur reyndar þvert á brjóstadýrkun samtímans. En þetta eru vond tíðindi fyrir lýtalækna sem nú verða að minnka við sig bæði bílinn og sumarbústaðinn ef áhugi á brjóstum er hverfandi.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óttar Guðmundsson Mest lesið Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun
Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson Skoðun