Þjálfari Burnley óánægður með Mike Dean 16. október 2016 19:08 Sean Dyche var ósáttur með dómarann í leiknum gegn Southampton.
Sean Dyche þjálfari Burnley var óánægður með Mike Dean dómara í leik Burnley og Southampton í dag. Southampton lagði Burnley 3-1 á St.Marys í dag þar sem Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley. Jóhann Berg fékk dæmda á sig vítaspyrnu sem Southampton skoraði þriðja markið úr og komst þá í 3-0. Sean Dyche þjálfari Burnley var ósáttur með vítaspyrnuna sem dæmd var á Jóhann Berg og vildi þar að auki meina að Íslendingurinn knái hefði átt fá vítaspyrnu sjálfur. Hann lét þessa skoðun sína í ljós í viðtali við BBC eftir leik. „Við hefðum átt að fá vítaspyrnu í stöðunni 0-0 og það hefði breytt leiknum. Það segir ekki alla söguna því þeir eru með mjög gott lið en við þurftum að fá þessa ákvörðun með okkur. Þetta var enginn vafi, það var ómögulegt að taka ranga ákvörðun,“ sagði Dyche og var þar að auki ekki sáttur með vítaspyrnuna sem dæmd var á Jóhann Berg fyrir að fella Sam McQueen. „Vítaspyrnan sem þeir fengu var vafasöm, snertingin var afar lítil ef það var einhver snerting. Ég er ekki að koma með afsakanir, þeir hefðu getað skorað meira, en þú þarft að fá svona ákvarðanir með þér,“ bætti Dyche við. Southampton er ósigrað í síðustu níu leikjum á heimavelli en Burnley hefur enn ekki fengið stig á útivelli á tímabilinu.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Fótbolti David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Enski boltinn Fleiri fréttir David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ „Haaland er þetta góður“ Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Úlfarnir ráku Pereira Engin klipping á næstunni: Miður sín en með augun á 8. desember Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valdið matareitrun Liverpool loks á sigurbraut á ný Pedro afgreiddi Tottenham Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Amad bjargaði stigi fyrir United Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ Sjá meira