Kári: Getum alveg unnið titilinn aftur í Mýrinni Ingvi Þór Sæmundsson í Hertz-höllinni skrifar 13. maí 2016 20:57 Kári þarf að brýna sitt lið fyrir sunnudaginn. vísir/anton
Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu, var ekki sáttur með sóknarleik síns liðs í tapinu fyrir Stjörnunni í kvöld. „Við vorum í veseni í sóknarleiknum allan seinni hálfleikinn, gerum ótrúlega mikið af einföldum mistökum og missum boltann frá okkur,“ sagði Kári en Grótta tapaði boltanum 11 sinnum á síðustu 21 mínútu seinni hálfleiks. „Þær refsuðu okkur mikið með hraðaupphlaupum í dag sem var ansi dýrkeypt.“ Grótta gat tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld og farið þar með taplaust í gegnum úrslitakeppnina. En fannst Kára spennustig leikmanna Gróttu of hátt í leiknum í kvöld? „Ég veit það ekki. Ég tek ekkert af Stjörnunni, þær voru grimmar og grimmari en við á ýmsum sviðum. Við spiluðum sterkan varnarleik og fengum fullt af hraðaupphlaupum í fyrstu tveimur leikjunum en ekki í dag. „Svo var þéttleikinn í vörninni ekki til staðar, við brutum ekki nógu vel á þeim,“ sagði Kári. Þrátt fyrir tapið í dag fær Grótta tvo möguleika í viðbót til að tryggja sér titilinn sem liðið vann í fyrra. „Það eru ýmsir þættir sem við þurfum að fínpússa fyrir sunnudaginn. Nú er ekkert annað að gera en að þétta raðirnar, nýta kvöldið til undirbúnings og svo er æfing á morgun. Við unnum titilinn í Mýrinni í fyrra og við getum alveg tekið upp á því aftur á sunnudaginn,“ sagði þjálfarinn að endingu.
Olís-deild kvenna Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira