Gunnar Heiðar: Nóg af spjalli - nú þarf að gera eitthvað 21. apríl 2016 09:30
Íþróttadeild 365 spáir ÍBV í níunda sæti Pepsi-deildar karla eins og kom fram í Fréttablaðinu og á vísi í morgun. Sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson ætlar liðinu stóra hluti í ár og koma liðinu aftur í hóp þeirra bestu, eins og hann lýsti í viðtali sem má sjá hér fyrir ofan. „ÍBV hefur alltaf verið óskrifað blað síðustu ár. Það er alltaf talað um að þetta eigi að vera árið en því hefur aldrei verið fylgt eftir. Það er ekki nóg að spjalla um það, nú þarf að gera eitthvað,“ sagði Gunnar Heiðar í viðtalinu. „Við fórum allir í naflaskoðun - leikmenn, þjálfarar og stjórnin. Við settumst niður, sögðum það sem við vildum segja og var það útkljáð á staðnum.“ „Þetta lítur mjög vel út. Það er allt önnur stemning í þessu. Þetta er eins og í gamla daga, þegar maður var að byrja í þessu. Þá vorum við á toppnum í einhver ár. Maður finnur að það er eitthvað að byrja.“ „Eitt af markmiðunum sem ég hafði þegar ég kom heim var að koma ÍBV aftur á þann stall sem félagið var á þá. Þar á klúbburinn að vera.“ Gunnar Heiðar lýsir því hvernig hann hefur haft aðkomu að liðinu undanfarin ár, áður en hann gekk svo aftur formlega til liðs við Eyjamenn. „Ég held að við séum nú að byrja á vonandi einhverju stóru. Að það vindi síðan upp á sig og verði fínt. Hvort það gerist í ár eða síðar kemur svo bara í ljós.“ Viðtalið má sjá allt hér fyrir ofan en þar fer Gunnar Heiðar yfir væntingar Eyjamanna fyrir sumarið.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Fleiri fréttir Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Sjá meira