Góður dagur fyrir Nótt í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2016 15:00 Nótt Jónsdóttir. Mynd/fh.is
FH-konur voru í stuði í gær í fótboltanum þegar þær unnu 6-0 stórsigur á Þrótti í Lengjubikarnum en enginn var heitari en framherjinn Nótt Jónsdóttir. Leikurinn fór fram í Egilshöllinni en strax á eftir mættust karlalið félaganna þar sem FH vann einnig sigur. Nótt Jónsdóttir skoraði þrjú mörk í leiknum en hin mörkin skoruðu þær Margrét Sif Magnúsdóttir, Alda Ólafsdóttir og Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir. Nótt skoraði mörkin sín þrjú á aðeins sautján mínútna kafla í seinni hálfleik en það fyrsta kom á 51. mínútu en það síðasta á 68. mínútu. Nótt Jónsdóttir hefur þar með skorað fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjum FH-liðsins í Lengjubikarnum en hún tryggði liðinu 1-1 jafntefli á móti ÍA í Akraneshöllinni rúmri viku fyrr. Nótt er á nítjánda aldursári en hún á þrjá leiki að baki fyrir sextán ára landsliðið. Nótt skoraði 3 mörk í 8 leikjum á síðasta ári þegar FH-stelpurnar tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni. FH-liðið er á toppnum í B-deild Lengjubikarsins með sín fjögur stig en bæði Valur og Afturelding, sem koma í næstu sætum með þrjú stig, eiga leik inni á FH-stelpurnar. Afturelding vann 3-0 sigur á KR í fyrsta leik en Valskonur unnu 4-1 sigur á ÍA. Næsti leikur FH-liðsins er ekki fyrr fimmtudaginn 7. apríl þar sem liðið mætir KR. Lokaleikirnir eru síðan á móti Aftureldingu og Val.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Tvö hundruð milljónir punda í vaskinn hjá Everton Sport Cecilía meðal fimm efnilegustu leikmanna á EM Fótbolti Fyrrum Championship þjálfari starfar nú á flugvelli Sport Getur fengið fangelsisdóm fyrir ofbeldi gagnvart dómara Sport Dagskráin í dag: Besta deild karla og leikur 7 í NBA Sport Upphitun fyrir NBA úrslitin milli Pacers og Thunder Sport Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum Íslenski boltinn Forsetahjónin fengu EM-treyjur frá stelpunum okkar Fótbolti Gæti suðurafrískt lið farið áfram á HM félagsliða? Sport Meistarinn bestur og hvítur Monster kveikti í Tómasi Golf Fleiri fréttir Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 4-1 | Öruggur sigur Þórs/KA gegn lánlausi liði Víkings Uppgjörið: FH - Valur 1-2 | Valur nældi sér í ofboðslega langþráðan sigur Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 0-3 | Blikar á toppnum næsta mánuðinn Reif Sæunni niður á hárinu Lárus Orri stýrir ÍA út tímabilið Gæti gerst hratt hjá ÍA en varaplanið er klárt Íhugaði að koma ekki heim: „Þarf að berjast fyrir mínu sæti í liðinu“ Uppgjörið: FHL - Tindastóll | Stólarnir koma sér úr fallsæti Uppgjörið: Fram - Þróttur | Þróttarar stöðva sigurgöngu Fram Ekkert lið vill fara með óbragð í munni frá tíundu umferð Átök Arnars og Óskars hófust í yngri flokkum: Dramatík í úrslitum á Akureyri „Þetta var leikur smáatriða“ Uppgjörið: Afturelding 0 - 1 Fram | Fram síðasta liðið áfram í undanúrslit Ótrúlega skrýtið að sjá Val: „Þetta er andlegt þrot“ KA tapaði áfrýjun og þarf að greiða Arnari Hefði blásið upp fjandskapinn: „Þetta jaðraði við hatur á tímabili“ „Ég held samt að hann sé að bulla“ Stígur Diljan ristarbrotin og missir af Evrópuleikjunum Arnar fór í starfskynningu hjá Óskari: „Ætlum að breyta íslenskum fótbolta“ Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 4-2 | Mörkum í öllum regnbogans litum rigndi í Garðabæ „Mætum einu besta liði landsins“ Silkeborg til Akureyrar og leið Vals, Víkings og Breiðabliks ljósari Þórdís Elva og Guðni valin best í fyrri umferðinni Gummi Ben: Erum við að fara að sjá Jóhannes Karl snúa aftur í Skagaliðið? Flýta tveimur leikjum KA-manna í næsta mánuði Versta staða Fylkismanna í næstum því fjörutíu ár „Ég á erfitt með að trúa þessu upp á hreinræktaðan Árbæing“ Sjáðu Gylfa leggja upp sigurmarkið fyrir Gunnar og öll hin í sigri Víkinga á KR Uppgjörið: Víkingur - KR 3-2 | Víkingur tyllti sér á toppinn í frábærum leik Sjá meira