Fyrirliðinn hélt við eiginkonu liðsfélaga Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. mars 2016 12:45 Keller á spjalli við þjálfara Randers, Colin Todd, sem hefur meðal annars stýrt liði Bolton. vísir/getty
Það er allt í uppnámi hjá danska liðinu Randers eftir að upp komst um ástarsamband fyrirliða liðsins við eiginkonu annars leikmanns liðsins. Fyrirliðinn, Christian Keller, hélt við eiginkonu Jonas Borring. Borring er nú skilinn við konuna, Kira, en þau búa samt enn í sama húsi með börnum sínum. Þjálfari Randers, Colin Todd, er búinn að setja Keller á bekkinn. „Hann segir að ég sé á bekknum þar sem aðrir menn séu betri en ég í augnablikinu. Ég virði það og félagið. Ég fer eftir því sem stjórinn segir,“ sagði Keller. Fyrirliðinn hefur ekki rætt við Borring síðan að málið komst upp. „Málið er á borði félagsins og félagið tekur ákvörðun. Ég sé ekki annað gerast en að annar okkar fari frá félaginu. Ég veit ekki hvor okkar það verður,“ sagði Keller en hann segist líka finna til með Borring. „Ég er búinn að segja liðsfélögunum frá því sem gerðist. Ég er ekki kaldur maður sem hefur enga samúð. Ég er með hjarta og ég fylgdi mínu hjarta í þessu máli. Þess vegna kom þessi staða upp.“ Það er oft talað um að regla númer eitt í búningsklefum íþróttaliða sé að menn stinga ekki undan félaganum. „Það særði mig mikið að Kira skildi hafa ákveðið að vera með Christian. Samband mitt við Christian verður aldrei hægt að laga því hann braut aðalregluna. Hann stakk mig í bakið,“ sagði Borring eðlilega sár.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Sjá meira