Böðvar í leikmannahóp Midtjylland í fyrsta skipti Anton Ingi Leifsson skrifar 13. mars 2016 16:23 Böðvar gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Midtjylland á morgun. vísir/andri marinó
Böðvar Böðvarsson gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir dönsku meistarana í FC Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni á morgun þegar liðið mætir botnliði Hobro á heimavelli. FH-ingurinn gekk í raðir Midtjylland í láni undir lok janúar-gluggans og hefur verið að æfa með aðalliðinu og spilað einn leik með varaliðinu. Hann verður svo í fyrsta skipti í leikmannahóp aðalliðsins á morgun þegar liðið fær Hobro í heimsókn. „Hann er ungur leikmaður sem hefur komið inn og verið frískur. Hann hefur þurft að venjast nýjum áskorunum hjá nýju félagi. Hann er klárlega með hæfileika og því er hann nú í leikmannahópnum,” sagði Jess Thorup, þjálfari Midtjylland, um Böðvar eða "Bödda Löpp" eins og hann er oftast kallaður. Midtjylland er í fimmta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir úrslit dagsins, en þeir eiga þó leik inni á flest liðin í kringum sig. Með sigri gegn Hobro á morgun fer liðið upp í fjórða sætið og með stórsigri geta þeir hoppað upp í þriðja sæti deildarinnar. Bæði lið töpuðu sínum síðasta leik; Hobro fékk skell gegn Viborg, 6-0, og Midtjylland tapaði fyrir Nordsjælland, 2-1. Hann er klárlega með hæfileika og þeir eru til staðar. Leikurinn á morgun hefst klukkan 18.00 að íslenskum tíma og er sýndur á TV3 Sport1 fyrir áhugasama.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Sjá meira