Fullkomið Dagsverk Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. febrúar 2016 06:00 Dagur Sigurðsson fagnar hér Evrópumeistaratitlinum eftir úrslitaleikinn í Kraká í gær. Þar höfðu Þjóðverjar mikla yfirburði gegn Spánverjum. Fréttablaðið/Getty
Dagur Sigurðsson er langt á undan áætlun með þýska landsliðið. Þegar hann tók við því fyrir hálfu öðru ári var ætlunarverkið að byggja upp lið sem gæti orðið Ólympíumeistari árið 2020. Það er enn stóra markmið þýska landsliðsins en engan gat órað fyrir því að Degi myndi takast að vinna stóran titil á svo skömmum tíma, líkt og hann gerði á Evrópumeistaramótinu í Póllandi í gær. Þýskaland varð þá Evrópumeistari eftir magnaða frammistöðu í úrslitaleiknum gegn Spáni. Niðurstaðan var sjö marka sigur, 24-17. Dagur hefur hvað eftir annað á Evrópumeistaramótinu í Póllandi sýnt hversu klókur þjálfari hann er. Hann undirbjó lið sitt af kostgæfni fyrir hvern andstæðing og tókst ávallt að fá það besta úr þeim leikmönnum sem hann var með í höndunum hverju sinni. Dagur hefur á ferli sínum lagt ofuráherslu á vinnusemi og dugnað, bæði hjá sjálfum sér og leikmönnum sínum. Það er það sem skilaði Þýskalandi Evrópumeistaratitlinum, fyrst og fremst. Í viðtali við þýska sjónvarpið eftir úrslitaleikinn sagði Dagur að árangurinn þyrfti ekki að koma neinum á óvart. „Við höfum nú verið að spila góðan handbolta í átján mánuði. Það er engin tilviljun. Þetta eru ekki bara átta leikmenn heldur erum við með gott lið. Það er sama hver kemur inn í liðið – allir gefa sig alla í leikinn. Allir leikmenn eiga hrós skilið fyrir það,“ sagði Dagur og bætti hann við að hann væri bæði þakklátur og stoltur.Vísir/GettyEinbeiting Skilaboð Dags í leikhléum voru skýr. Ásamt því að leggja upp sóknar- og varnarskipulag hverju sinni voru skilaboðin sem fylgdu ávallt þau sömu – menn ættu að skila sér fljótt í vörn, brjóta ekki klaufalega af sér og halda einbeitingu og ró. Dagur var spurður sérstaklega út í hvernig honum hefði tekist að halda einbeitingu leikmanna í lagi fram á síðustu mínútu í úrslitaleiknum. „Það skiptir máli að pirra sig ekki yfir því þó svo að maður eigi slæmt skot eða eitthvað slíkt. Menn verða bara að halda áfram að spila sinn leik,“ sagði hann og benti á að þó svo að forysta Þýskalands í leiknum í gær hefði oft verið mikil hefði lítið mátt út af bregða. „Spánverjar eru með frábært lið og hefðu hvenær sem er getað komið til baka,“ sagði þjálfarinn.Andreas Wolff.Vísir/GettyÚlfurinn í markinu Það vakti eflaust furðu margra þegar Dagur ákvað að velja Andreas Wolff í markvarðateymi þýska landsliðsins í stað Silvio Heinevetter, hans gamla markvarðar hjá Füchse Berlin. Í stuttu máli sagt þá efast enginn um val Dags í dag. Wolff var valinn í úrvalslið mótsins fyrir úrslitaleikinn í gær og hélt upp á það með ótrúlegri frammistöðu í úrslitaleiknum. Hann varði 23 skot og var með langt yfir 50 prósenta hlutfallsmarkvörslu allan leikinn. Eins og Wolff benti sjálfur á í viðtölum eftir leik naut hann góðs af því að spila fyrir aftan frábæra vörn Þýskalands. Með þá Finn Lemke og Hendrik Pekeler fremsta í flokki áttu Spánverjar í stökustu vandræðum með að skora þau mörk sem þurfti til að halda í við Þjóðverja. Það tók Spánverja rúmar 45 mínútur að skora tíu mörk í leiknum. Og þá voru úrslitin svo gott sem ráðin.Loksins komnir á Ólympíuleika Þjóðverjar misstu af Ólympíuleikunum í Lundúnum árið 2012 og það sveið þeim mjög. En með sigrinum í gær er Þýskaland nú þegar búið að tryggja sér farseðilinn til Ríó sem og þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í Frakklandi á næsta ári. Þetta er aðeins í annað skipti sem Þýskaland verður Evrópumeistari í handbolta en fyrri titilinn kom árið 2004. Þjóðverjar hafa þrívegis orðið heimsmeistarar og einu sinni Ólympíumeistarar – það var á heimavelli árið 1936. Dagur gæti því bundið enda á 80 ára bið Þjóðverja eftir Ólympíumeistaratitli strax í sumar. eirikur@frettabladid.is
EM 2016 karla í handbolta Tengdar fréttir Hanning: Dagur á bróðurpart þessa heiðurs Varaforseti þýska handknattleikssambandsins lofaði frammistöðu þýska landsliðsins eftir sigurinn á EM. 31. janúar 2016 18:16 Dagur, kunna Íslendingar að fagna? Íslenski landsliðsþjálfari Þýskalands þótti heldur rólegur í fögnuðinum eftir sigurinn á EM í Póllandi. 31. janúar 2016 23:30 Dagur Evrópumeistari með Þýskalandi Mögnuð frammistaða þýska landsliðsins gegn Spánverjum í úrslitaleiknum á EM í Póllandi. 31. janúar 2016 18:00 "Athyglin sem Dagur fær á stigi sem maður skilur ekki“ Bróðir Evrópumeistarans Dags Sigurðssonar er afar stoltur af sínum manni. 31. janúar 2016 21:55 Dagur skálaði við þýsku þjóðina Tók sér kampavínsglas í hönd og skálaði fyrir Evrópumeistaratitli. 31. janúar 2016 19:19 Mest lesið Býður sig óvænt fram til forseta fyrst kvenna Sport Sungu UEFA Mafia og Breiðablik fékk 1,4 milljóna króna sekt Fótbolti Dortmund biðst afsökunar á að hafa gert grín að stamandi áhrifavaldi Fótbolti Littler laug því að hann væri hættur Sport Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Fótbolti Sveindís áberandi í nótt en sofnar í bíó Fótbolti „Hugsa að hann eigi alveg inni einhverja sentímetra, jafnvel tíu“ Sport Man. Utd fær tvo til baka: Amorim grínaðist með fundinn með Ratcliffe Enski boltinn Segir að United hafi keypt rangan markvörð: „Aldrei heyrt um hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Sjá meira
Hanning: Dagur á bróðurpart þessa heiðurs Varaforseti þýska handknattleikssambandsins lofaði frammistöðu þýska landsliðsins eftir sigurinn á EM. 31. janúar 2016 18:16
Dagur, kunna Íslendingar að fagna? Íslenski landsliðsþjálfari Þýskalands þótti heldur rólegur í fögnuðinum eftir sigurinn á EM í Póllandi. 31. janúar 2016 23:30
Dagur Evrópumeistari með Þýskalandi Mögnuð frammistaða þýska landsliðsins gegn Spánverjum í úrslitaleiknum á EM í Póllandi. 31. janúar 2016 18:00
"Athyglin sem Dagur fær á stigi sem maður skilur ekki“ Bróðir Evrópumeistarans Dags Sigurðssonar er afar stoltur af sínum manni. 31. janúar 2016 21:55
Dagur skálaði við þýsku þjóðina Tók sér kampavínsglas í hönd og skálaði fyrir Evrópumeistaratitli. 31. janúar 2016 19:19