Özil ekki lengur stoðsendingakóngur Evrópu Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. febrúar 2016 15:45 Mesut Özil hefur ekki lagt upp mark í síðustu fjórum leikjum sem hann hefur spilað. vísir/getty
Mesut Özil, miðjumaður Arsenal í ensku úrvaldeildinni, er ekki lengur stoðsendingakóngur Evrópu þegar kemur að stærstu fótboltadeildum álfunnar. Þjóðverjinn byrjaði tímabilið stórkostlega og lagði upp 16 mörk fyrir áramót en hefur nú ekki gefið stoðsendingu í fjórum leikjum í röð og þá var hann frá vegna meiðsla í þeim fimmta. Özil stefnir leynt og ljóst að stoðsendingameti Thierry Henry sem eru 20 á einni leiktíð í úrvalsdeildinni, en þrátt fyrir að vera ískaldur í byrjun nýs árs hefur hann enn fjórtán leiki til að ná meti Frakkands og bæta það.Henrik Mkhitaryan fagnar með Dortmund.vísir/gettyArmenski framherjinn Henrik Mkhitaryan, leikmaður Borussia Dortmund, er kominn á topp stoðsendingalistans, en hann er búinn að leggja upp 17 mörk í öllum keppnum á tímabilinu. Özil deilir nú öðru sætinu með 16 stoðsendingar ásamt Neymari, leikmanni Barcelona, og þeir Kevin De Bruyne, leikmaður Manchester City, og Ángel di María, leikmaður PSG, eru saman í 4.-5. sæti með tólf stoðsendingar hvor. Mkhitaryan hefur vissulega „aðeins“ lagt upp níu mörk í þýsku 1. deildinni, en hefur aftur á móti verið duglegur í bikarnum og Evrópudeildinni. Özil hefur ekki lagt upp eitt mark utan úrvalsdeildarinnar, hvorki í bikar, deildabikar né Meistaradeildinni.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Besta sætið: Verðandi meistarar eða meiðslapésar? Sport „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Enski boltinn Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Enski boltinn Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Fótbolti Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Guardiola aflýsti æfingu liðsins Dómarinn festist á leikmannafundi Chelsea „Þeir eru líka að skíta á sig“ Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Gamla Skyttan veitti City þungt högg Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Furðumark skildi á milli á Leikvangi ljóssins Ratcliffe segir að Carrick sé að gera frábæra hluti Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Guardiola hreinskilinn: „Ef við töpum stigum er þetta búið“ Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Sjá meira