„Hönnuður“ gataskeiðar hlaut dóm fyrir brot á iðnaðarlögum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. febrúar 2016 13:15 María Krista og umdeildu IKEA-skeiðarnar hans afa.
María Krista Hreiðarsdóttir hjá Krista design, sem umdeilt er hvort titla eigi sem hönnuð Ikea-skeiðar með gati sem selt er undir heitinu „Skeiðin hans afa“, hlaut árið 2010 dóm fyrir brot á iðnaðarlögum og eiginmaður hennar sömuleiðis. Voru þau sakfelld fyrir að hafa rekið ljósmyndastofu án þess að hafa meistara til forstöðu. Hafa þau síðan barist fyrir því að ljósmyndun verði ekki lengur löggild iðngrein. Hópur ljósmyndara, alls níu sem ráku hver um sig ljósmyndastofu hér á landi, kærðu Maríu og eiginmann hennar Börk Jónsson til lögreglu. Töldu þau, sem dómurinn féllst á, að hjónin hefðu ekki tilskilin réttindi til að reka ljósmyndastofu. Vörn Maríu Kristu og Barkar fólst í því að þau væru að reka auglýsingastofuna Augljós auglýsingastofa en fyrir dómi virtust verkefnin á því sviði takmarkast við boðskort í afmæli.Sjá einnig:Framkvæmdastjóri IKEA fagnar gataskeiðunum Hins vegar voru þau með heimasíðuna Brosbörn og virðist reksturinn hafa aðallega snúið að myndatökum í tengslum við foreldra og börn. Óljóst er þó hvort þau hafi auglýst myndatöku en á heimasíðunni kom fram að þau væru ekki lærðir ljósmyndarar. Vitni sem komu fyrir dóminn, viðskiptavinir þeirra, sögðust hafa heyrt af starfsemininni en væru vel meðvituð um að María væri ekki lærður ljósmyndari.Ekki filma og framköllun Þjónustan fólst í myndatöku, stafrænni vinnslu og brennslu á disk. Ekki var boðið upp á prentun mynda. Sagði María að hún liti svo á að hún tæki aðeins gjald fyrir stafræna myndvinnslu og væri því ekki að reka hefðbundna ljósmyndastofu. Hún gæti hins vegar ekki unnið við sitt fag án þes að taka líka stafrænar myndir. Í vörn Maríu kom fram að hún liti svo á að hefðbundin ljósmyndun væri það að taka myndir á filmu og framkalla þær í myrkraherbergi. Einn ljósmyndaranna sem lagði fram kæru sagði fyrir dómi að ljósmyndun væri lögvernduð iðngrein sem fæli í sér að taka myndir, vinna þær og koma þeim frá sér á boðlegan hátt. Hann fullyrti að María hefði auglýst þessa þjónustu og ólögleg starfsemi á borð við þessa hefði þau áhrif að hún drægi úr starfsemi ljósmyndara. Dómurinn dæmdi þau Maríu og Börk hvort um sig til greiðslu 150 þúsund króna sektar fyrir að brjóta iðnaðarlög. Dómurinn var kveðinn upp í október 2010 og í nóvember birtu þau María og Börkur yfirlýsingu um að starfsemi Augljós auglýsingastofu hefði verið hætt.Berjast fyrir frelsi til ljósmyndunar „Við trúum því að viðskiptavinurinn eigi að hafa frelsi til að velja hvert hann fer með viðskipti sín. Samkvæmt stjórnarskrá Íslands kemur fram að öllum sé heimilt að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa en þó megi setja vissar skorður enda krefjist „almannahagsmunir“ þess. Framfarir í stafrænni tækni, úrelding varhugaverðra efna og tækja sem áður fyrr gátu skapað hættu fyrir viðskiptavininn og niðufelling á þessari löggjöf í nágrannalöndum, voru meðal annars rök sem við notuðum í málflutningi okkar en allt kom fyrir ekki,“ sagði í tilkynningunni. Hörmuðu þau að geta ekki haldið rekstrinum áfram en þökkuðu um leið fyrir frábær samskipti, stuðning og góða stundir. Minntu þau um leið á Kristadesign „en þar munum við halda ótrauð áfram í framleiðslu íslenskrar hönnunar á gjafavöru og skarti.“ Þá eru þau María og Börkur hluti af baráttuhópnum Frelsi til ljósmyndunar sem krefst þess að að löggilding iðngreinarinnar ljósmyndun verði felld niður.
Höfundaréttur IKEA Tengdar fréttir Bora göt í Ikea-skeiðar og kalla íslenska hönnun Ikea-skeiðin hans afa vekur athygli en mismikla lukku. 9. febrúar 2016 10:10 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira
Bora göt í Ikea-skeiðar og kalla íslenska hönnun Ikea-skeiðin hans afa vekur athygli en mismikla lukku. 9. febrúar 2016 10:10