Umfjöllun og myndir: Ísland - Hvíta Rússland 38-39 | Varnarleysi í Katowice 17. janúar 2016 17:00
Ísland tapaði fyrir Hvít-Rússum, 38-39, í öðrum leik sínum í B-riðli á Evrópumótinu í Póllandi í dag.Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum og náði þessum myndum hér fyrir ofan. Eins og tölurnar gefa til kynna var sóknarleikur íslenska liðsins í leiknum frábær en varnarleikurinn var stórkostlega lélegur og markvarslan lítil sem engin. Til marks um það hefur íslenska liðið aldrei fengið á sig fleiri mörk í leik á Evrópumóti. Ísland náði fjögurra marka forystu, 24-20, snemma í seinni hálfleik og hefði þá átt að klára dæmið. Það tókst ekki, Hvít-Rússar voru eldsnöggir að jafna og voru svo með frumkvæðið á lokakaflanum og lönduðu að lokum eins marks sigri, 38-39. Ísland er því enn með tvö stig í B-riðli, jafnmörg og Hvít-Rússar og Króatar sem mæta Noregi á eftir. Alexander Petersson var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk. Róbert Gunnarsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Arnór Þór Gunnarsson komu næstir með fimm mörk hver. Fyrri hálfleikurinn var mjög frábrugðinn leiknum gegn Noregi, miklu hraðari og mörkin fleiri. Snorri Steinn Guðjónsson kom inn í byrjunarliðið og byrjaði leikinn af krafti. Snorri var beittur og skoraði þrjú af fyrstu átta mörkum íslenska liðsins. Ásgeir Örn Hallgrímsson átti einnig góðan fyrri hálfleik og skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum. Íslenski sóknarleikurinn gekk smurt þrátt fyrir að Aron Pálmarsson væri tekinn út en alls komust níu leikmenn Íslands á blað í fyrri hálfleik. Eina áhyggjuefnið voru tapaðir boltar sem voru sex í fyrri hálfleik. Varnarleikurinn var hins vegar hörmulegur, ólíkt því sem var gegn Noregi. Björgvin Páll Gústavsson byrjaði leikinn vel en varði aðeins tvö skot á síðustu 15 mínútum fyrri hálfleiks. Ísland var með frumkvæðið í fyrri hálfleiknum en tókst aldrei að slíta sig frá Hvít-Rússunum sem eru ólseigir. Íslensku strákarnir leiddu með einu marki í hálfleik, 18-17, og ljóst að þeir þyrfti að bæta varnarleikinn í seinni hálfleik. Sú varð þó ekki raunin. Íslenska liðið byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og þegar sjö mínútur voru liðnar af honum var staðan orðin 24-20 og útlitið gott. Það forskot hvarf eins og dögg fyrir sólu. Hvít-Rússarnir jöfnuðu í 24-24 gegn varnarlausum Íslendingum. Lærisveinar Yuri Shetsov keyrðu grimmt í bakið á íslenska liðinu, skoruðu 10 mörk úr hraðaupphlaupum auk nokkurra marka eftir hraða miðju. Liðin skiptust á að skora næstu mínúturnar en smám saman náðu Hvít-Rússar yfirhöndinni. Sóknarleikur þeirra gekk smurt gegn skelfilega slakri íslenskri vörn. Það var sama hvað Hvít-Rússar gerðu, það gekk allt upp á meðan íslensku varnarmennirnir stóðu og horfðu á. Markvarslan var sömuleiðis engin. Hvít-Rússar voru sem áður sagði á undan að skora á lokakaflanum en alltaf jöfnuðu Íslendingar. Alexander fór á kostum í seinni hálfleik og skoraði að vild. Róbert var sömuleiðis öflugur inni á línunni en hann nýtti öll fimm skot sín í leiknum. Siarhei Shylovich kom Hvíta-Rússlandi í 38-37 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Næsta sókn Íslands gekk erfiðlega og endaði með skoti Alexanders í hvít-rússnesku vörnina. Hvít-Rússar fóru í sókn og voru við það að fá dæmda á sig leiktöf þegar Shevtsov tók leikhlé. Að því loknu stilltu Hvít-Rússar upp í kerfi fyrir Uladzislau Kulesh sem þrumaði boltanum í netið og jók muninn í 39-37. Aron Kristjánsson tók leikhlé þegar 35 sekúndur voru eftir. Ísland þurfti mark sem fyrst og Arnór Þór fékk dauðafæri til að minnka muninn í eitt mark en Viachaslau Saldatsenka varði skot hans. Hvít-Rússar töpuðu boltanum strax aftur og Vignir Svavarsson minnkaði muninn í 38-39 en tíminn til að jafna metin var einfaldlega of lítill. Lokatölur 38-39, Hvíta-Rússlandi í vil. Ísland mætir Króatíu í lokaleik sínum í B-riðli á þriðjudaginn.vísir/valliAlexander Petersson, besti maður íslenska liðsins, svekktur í leikslok.Vísir/Valli
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira