Breið vörulína og úrvals þjónusta 5. maí 2015 12:00 Viktor Karl Ævarsson, sölu- og markaðsstjóri (t.v.), og Magnús Jón Björgvinsson, sölufulltrúi lyftara, taka vel á móti viðskiptavinum.mynd/gva MYND/GVA
Kynning: Fyrirtækið Kraftvélar byggir á gömlum grunni en sögu þess má rekja aftur til ársins 1992. Kraftvélar bjóða upp á heildarlausn í vörumeðhöndlun og má þar meðal annars nefna hina vinsælu lyftara frá Toyota og fjölbreytt úrval vöruhúsatækja frá BT. Að sögn Viktors Karls Ævarssonar, sölu- og markaðsstjóra Kraftvéla, hafa vinsældir þessara tveggja vörumerkja verið miklar undanfarin ár hjá bæði litlum og stórum fyrirtækjum í fjölbreyttum atvinnugreinum. „Við bjóðum upp á nokkrar gerðir rafmagnslyftara frá Toyota sem ýmist eru þriggja- eða fjögurra hjóla. Lyftigeta þeirra er frá einu tonni upp í átta tonn og allt þar á milli. Allir lyftararnir frá Toyota koma með staðalbúnaði með hinu einstaka Toyota System of Active Stability (SAS), sem er framúrskarandi tækni hönnuð til þess að tryggja öryggi lyftarans við notkun hans.“ Kraftvélar selja einnig gott úrval vöruhúsatækja frá BT og má þar nefna úrval brettatjakka, rafmagnsbrettatjakka, rafmagnsstaflara, hillulyftara og dráttartæki. „Flest stóru vöruhúsin og flutningafyrirtækin hér á landi nota vöruhúsatækin frá BT enda um úrvals vörumerki að ræða sem einmitt er í eigu Toyota. BT er enn í dag frumkvöðull á sínu sviði í vörumeðhöndlun, býður upp á breiða vörulínu og getur oft og tíðum boðið upp á mun sérhæfðari búnað en keppinautarnir.“ Auk lyftaranna og vöruhúsatækjanna bjóða Kraftvélar líka upp á skotbómulyftara frá New Holland sem eru fáanlegir í ýmsum stærðum og gerðum. „Auk þess erum við með stærri lyftara frá Kalma. Það eru þessir stærri lyftarar sem til dæmis Eimskip, Samskip, Alcan og fleiri stórfyrirtæki nota enda fáanlegir upp í 45 tonna lyftigetu á gámalyfturum. Kalmar- og Toyota-lyftarar passa einstaklega vel saman þar sem Toyota býður mest átta tonna lyftigetu og Kalmar fer mest upp í 52 tonna lyftigetu. Því má sjá að fyrirtækið býður sannarlega upp á heildarlausnir fyrir allar stærðir fyrirtækja í öllum atvinnugreinum.“Öflug viðgerðarþjónustaEinnig má nefna vörubílana frá Iveco en fyrirtækið framleiðir ýmsar stærðir vörubíla og hefur frá upphafi verið leiðandi á sviði nýsköpunar í sinni grein í heiminum. „Þannig má segja að við bjóðum upp á allt ferli vörumeðhöndlunar, lyftara sem lyfta vörum og vörubíla sem flytja þær.“ Kraftvélar taka eldri lyftara upp í nýja og því er alltaf töluvert úrval til af notuðum lyfturum sem skoða má á vefsíðu fyrirtækisins. Fjölmargir aukahlutir eru einnig í boði fyrir Toyota-lyftara að sögn Viktors sem til dæmis henta vel fyrir fiskvinnslu- og álfyrirtæki. Viðgerðaþjónusta Kraftvéla er öflug enda starfa þar 20 reynslumiklir starfsmenn að sögn Viktors. „Við bjóðum upp á mjög góða þjónustu þar sem við getum bæði sótt tækin eða boðið upp á að fara á einum af sex fullbúnum viðgerðarbílum okkar á staðinn. Þessi kostur er oft þægilegri fyrir viðskiptavini sem sleppa fyrir vikið við að missa lyftarann. Menntunarstigið á verkstæðinu okkar er mjög hátt, en við erum t.d. með menntaða vélvirkja, vélfræðinga, vélstjóra, rafeindavirkja og bifvélavirkja svo eitthvað sé nefnt.“Nánari upplýsingar má finna á kraftvelar.is/lyftarar.
Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent