Þau sem passa upp á okkur hin Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 31. desember 2015 07:00 Níu konur og börn dvöldu í Kvennaathvarfinu yfir jólin. Fréttablaðið greindi frá þessu á þriðjudaginn en þar kom fram að mun fleiri hafa leitað til athvarfsins á árinu sem er að líða en á síðasta ári. Þá höfðu fleiri komið í viðtöl í athvarfið í október en allt síðasta ár. Alls hafa minnst 120 konur dvalið í athvarfinu í ár að sögn Sigþrúðar Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins. Mikið átak hefur verið gegn ofbeldi byggt á samningi Reykjavíkurborgar og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem sérstök áhersla hefur verið á heimilisofbeldi. Markmið samningsins var að bæta verklag lögreglunnar og annarra fagaðila í heimilisofbeldismálum. Yfir jólahátíðina, sem núorðið spannar meira og minna alla aðventuna og fram að þrettándanum, er oft mikið álag á einstaklingum og heimilum. Neyslukrafan er gríðarleg sem og auknar samfélagslegar kröfur um fullkomleika og yfirgengilegheit. Allt á að vera eins og best verður á kosið, hreint, fínt, nýtt og flott, flottara, flottast. Boðskapurinn um gleði og friðarjól hefur víða týnst. Oft og tíðum verður álagið einhverjum fjötur um fót. Stemningin fer yfir strikið, áfengisneysla eykst og gleðin fær harkalegan endi. Konurnar sem vinna í Kvennaathvarfinu yfir jólin vinna erfitt og vanþakklátt starf. Í samtali við Fréttablaðið sagði Sigþrúður að fjárframlag til athvarfsins hefði hækkað um rúmar fimm milljónir á nýjum fjárlögum auk þess sem Reykjavíkurborg veitir stuðning. Framlögin duga fyrir daglegum rekstri, launakostnaði og öðru. Það er vel og mikilvægt að neyðarúrræðum eins og Kvennaathvarfinu sé veittur allur sá stuðningur sem þau þurfa á að halda. En Kvennaathvarfið er langt í frá eina neyðarúrræðið sem þarf að styðja við. Þó ógjörningur sé að telja þau upp svo tæmandi sé verður að minnast á björgunarsveitirnar, sem nú fyrir áramótin selja skotelda til að eiga fyrir starfsemi sinni meira og minna út árið. Hjálpræðisherinn hýsir þá sem ekki eiga í önnur hús að venda yfir jól, Rauði krossinn rekur hjálparsíma, áfallasjóð og fleira og fleira. Læknar, hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk vinnur allan ársins hring á bráðadeildum og öðrum deildum, sem og starfsmenn hjúkrunarheimila, sjúkraflutninga, fangelsa, lögreglunnar, Landhelgisgæslunnar og allra annarra sem standa vaktina fyrir okkur hin. Þau eru til staðar fyrir okkur hin sem skemmtum okkur hringinn í kringum landið. Þau bregðast við litlum og stórum áföllum og eru ávallt reiðubúin. Við hin stöndum í eilífri þakkarskuld við þau sem fórna sér fyrir þá sem verða fyrir áföllum. Hvort heldur sem það er hluti af starfi þeirra eða sjálfboðavinna, þá er það þakkarvert. Við skulum reyna að fara varlega og lifa lífinu fallega. Takk fyrir okkur. Fréttablaðið óskar lesendum sínum gleðilegs nýs árs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fanney Birna Jónsdóttir Mest lesið Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir Skoðun