Kínverskir bílframleiðendur vinna á heimafyrir Finnur Thorlacius skrifar 1. desember 2015 15:45 Great Wall Haval H3 jeppi.
Þó svo að hægt hafi verulega á vexti í bílasölu í Kína var vöxturinn þar mikill í október, eða 10% og seldust alls 1,94 milljónir bíla og var það umfram spár. Bílasala hefur ekki aukist jafn mikið í Kína á milli ára í 7 mánuði og er því spáð að hún verði á flugi næstu mánuðina. Kínverskir bílaframleiðendur unnu verulega á erlenda bílaframleiðendur og jókst markaðshlutdeild þeirra um 2,1% frá fyrra ári. Innfluttir bílar í Kína bera nokkuð háa tolla og hefur það orðið vatn á myllu innlendra framleiðenda. Kínversk stjórnvöld hafa lækkað tolla almennt á bíla og vilja með því auka söluna og tölurnar frá október staðfesta að það hefur tekist. Eins og víða annrsstaðar er sala jepplinga og jeppa mikil og vöxturinn milli ára nam 61% og seldust 622.000 þannig bílar í október. Á meðan seldust 1,05 milljón fólksbílar og stóða sala þeirra í stað á milli ára. Því er allur vöxturinn fólginn í sölu jepplinga og jeppa. Kínverski bílaframleiðandinn Great Wall, sem býður gott úrval jepplinga og jeppa, jók söluna um 14% í október. Ford og Hyundai náði einnig umtalsverði aukningu.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður