Klopp hefur ekki áhyggjur af gengi Liverpool á Anfield Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. nóvember 2015 09:15 Vísir/Getty
Liverpool mætir í kvöld Bordeaux á heimavelli sínum í Bítlaborginni en gengi liðsins framan af hausti hefur ekki verið frábært. Liverpool hefur unnið aðeins þrjá leiki sína af tíu á Anfield í haust og aðeins einn eftir að Jürgen Klopp tók við um miðjan síðasta mánuð. Lærsveinar Klopp komast áfram í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar með annað hvort sigri eða markalausu jafntefli í kvöld. Liverpool hefur aðeins skorað sex mörk í sex deildarleikjum á Anfield og ekki enn náð að vinna á heimavelli í Evrópudeildinni. Jürgen Klopp hefur þó ekki áhyggjur af þessu og telur að gengi liða á heimavelli sé ekki það sem ræður mestu í fótbolta. „Fyrst og fremst verðum við að þróa okkar leik og það er það sem við höfum gert síðustu vikurnar,“ sagði Klopp. „Maður verður að tala um slæmu hlutina, góðu hlutina og halda áfram að gera það sem við gerum vel.“ „Flest mörk sem við höfum fengið á okkur hafa komið eftir föst leikatriði. Það er ekki auðvelt að skapa færi gegn okkur og við þurfum að halda stöðugleika hvað það varðar.“ Síðan að Klopp tók við Liverpool hefur liðið spilað átta leiki á 40 dögum. Leikjálag hefur sitt að segja, telur Klopp. „Stundum verður maður að líða fyrir það og ég held að við getum skrifað tapið gegn Crystal Palace [í síðasta deildarleik Liverpool á Anfield] á það fremur en eitthvað annað.“
Evrópudeild UEFA Mest lesið Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fótbolti Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Fótbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Enski boltinn Spence og van de Ven báðust afsökunar Fótbolti „Ísland í hópi með Norður-Kóreu og Íran“ Sport Fleiri fréttir Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Viðar Ari lagði upp tvö í Íslendingaslag Daníel Leó hetjan í dramatískum sigri Ísak Bergmann og félagar nálgast Evrópusæti Annað tap spútnikliðsins kom í Manchester Loksins West Ham-sigur í London Sjá meira