Ford C-MAX valinn fjölskyldubíll ársins í Danmörku Finnur Thorlacius skrifar 27. nóvember 2015 11:24 Ford C-Max.
Nýlega var Ford C-MAX valinn fjölskyldubíll ársins (MPV) í Danmörku. Í umsögn um bílinn kom fram að Ford C-MAX byggi yfir einstakri blöndu af frábærum aksturseiginleikum, fallegu innanrými, stílhreinni hönnun og svo væri hann jafnframt á mjög góðu verði. Ford C-MAX er rúmgóður 5 sæta fjölskyldubíll þar sem auðveldlega er hægt að færa sætin til og nægt geymslupláss er fyrir allt sem fylgir nútíma fjölskyldum. Ford C-MAX er ekki einungis notendavænn og hugvitssamlega hannaður heldur er útlit hans líka sérlega fallegt. Ford C-MAX er með þægilegt innstig og því er sérlega gott að ganga um bílinn. Ökumaður situr hærra og stígur því út úr bílnum en ekki upp úr bílnum. Sama gildir þegar ökumaður sest inn. Auk þess sitja farþegar jafnframt hátt í bílnum og það er einmitt það sem svo margir bílkaupendur sækjast eftir í dag. Ford C-MAX er fáanlegur með margverðlaunuðu Ford EcoBoost vélinni sem hefur verið valin vél ársins þrjú ár í röð. Vélatækni gegnir lykilhlutverki í nýjum Ford C-MAX. Hún hjálpar við að draga úr rekstrarkostnaði og losun en skilar á sama tíma krafti og góðum afköstum. Nýja beinskipta EcoBoost bensínvélin í Ford C-MAX skilar 125 hestöflum. Hún eyðir einungis 5,1 l/100 km í blönduðum akstri og losar aðeins 117 g/km af koltvísýring. Brimborg hvetur áhugasama að koma og skoða fjölskyldubíl ársins í Danmörku hjá Brimborg að Bíldshöfða 6.
Mest lesið Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Einhliða vopnahlé Rússa hafið Erlent „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ Innlent Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Innlent Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Innlent „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Innlent „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ Innlent „Þetta er svona eitraður kokteill” Innlent Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Innlent Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Innlent