Opel-veisla hjá Benna Finnur Thorlacius skrifar 7. október 2015 11:30 Opel er í mikilli sókn í Evrópu og ný Astra hefur fengið mikið lof.
Bílabúð Benna er 40 ára og fagnar afmælinu með margs konar viðburðum á árinu. Nú slær fyrirtækið upp Opel-veislu á sölustöðum sínum bæði í Reykjavík og í Reykjanesbæ. Á meðan Opel-veislan stendur yfir fylgir veglegur afmælispakki með kaupum á nýjum Opel. Í afmælispakkanum eru Toyo harðskeljadekk, 200 lítra eldsneytisinneign og gullþvottur hjá Löðri í fimm skipti. Bílabúð Benna hóf sölu á Opel bifreiðum síðasta haust og býður nú upp á breiða línu af fólksbílum sem og atvinnubílum, en þeir bættust í bílaflóru fyrirtækisins nú fyrir skemmstu. Af helstu fólksbílategundum má nefna t.d. nýju útgáfuna af Opel Corsa, sem kynnt var í vor, jepplinginn Mokka og lúxusbifreiðina Insignia. Þá er Opel Astra alltaf vinsæll og hefur fengið mikið lof bílasérfræðinga. Nýlega var Opel Corsa kosinn „bestu bílakaupin í Evrópu“ í sínum stærðarflokki og Mokka var valinn 4X4 bíll ársins af neytendum í Þýskalandi. „Opel kemur sterkur inn hjá Íslendingum og segja má að landinn sé að uppgötva Opel gæðin uppá nýtt,“ segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna. „Opel er í mikilli sókn á öllum mörkuðum og við eigum stórafmæli þannig að við nýtum tilefnið og bjóðum fólki sem er í bílahugleiðingum til okkar í Opel-veislu.“ segir Benedikt.
Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Innlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Erlent Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Innlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Innlent