12 strokka ofur-Benz með rafmótorum á teikniborðinu Finnur Thorlacius skrifar 22. september 2015 13:29 Svo virðist sem Mercedes Benz ætli að keppa í öllum flokkum bíla, enda mikill vöxtur hjá fyrirtækinu um þessar mundir.
Svo virðist sem Mercedes Benz ætli að taka þátt í slagnum um öflugustu ofurbíla heims með nýjum bíl sem búinn verður 12 strokka vél, en að auki rafmótorum. Þessi samsetning hljómar kunnuglega, enda á hún við fljæotustu ofurbíla heims í dag, Porsche 918 Spyder, McLaren P1 og Ferrari LaFerrari, en þeir eru allir með öflugar vélar auk rafmótora. Eins og er er AMG GT bíll Mercedes Benz öflugasti bíll fyrirtækisins en það mun breytast með tilkomu þessa bíls. AMG GT kostar um 130.000 dollara en nýi bíllinn mun örugglega toppa það ríflega. Það að þessi nýi bíll verði knúinn rafmótorum réttlætir tilvist hans og hætt er við því að Benz væri ekki með 12 strokka bíl í smíðum ef hann væri ekki með rafmótorum til að keyra niður mengunargildi hans. Nýja ofurbílnum er ætlað að leysa af SLS bíl Mercedes Benz og er því hætt við að framleiðslu hans verði hætt er sá nýi kemur á markað.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent