Hjólað kringum Þingvallavatn 18. ágúst 2015 12:45 Björk Kristjánsdóttir féll fyrir hjólreiðum fyrir ári síðan. Hún hampar nú tveimur íslandsmeistaratitlum og tekur þátt í RB Classic mótinu þann 30. ágúst. Vísir/GVA
RB Classic götuhjólreiðamótið fer fram 30. ágúst. Björk Kristjánsdóttir, tvöfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum hvetur fólk til að skella sér. „Allavega hjóla einn hring ánægjunnar vegna.“ „Ég byrjaði aðeins að fjallahjóla síðasta sumar og fannst það æðislegt. Ég stunda fjallaskíði á veturna og fjallahjólreiðarnar eru bara eins og að geta gert það yfir sumartímann. Vinur minn manaði mig til þess að taka þátt í fjalla-endurokeppni í september, þar sem ég lenti í öðru sæti. Þá varð ég æstari, vildi komast í almennilegt form og fór yfir í racerinn líka,“ segir Björk Kristjánsdóttir en hún hefur á skömmum tíma stimplað sig rækilega inn í íslensku hjólasenuna. Björk er Íslandsmeistari kvenna bæði í götu- og fjallahjólreiðum og sló þar með út eina fremstu hjólreiðakonu landsins síðustu ár, Maríu Ögn Guðmundsdóttur. „Ég sá það á árangrinum hjá mér í fyrra að ég átti alveg séns í hana og tókst svo að vinna hana á Íslandsmeistaramótinu götuhjólreiðunum. Það er gaman að vera komin á sama stað og hún. María er frábær íþróttakona,“ segir Björk sposk. Björk yrði seint kölluð sófakartafla, undanfarin ár hefur hún gengið á fjöll og jökla og stundað skíðaíþróttina af miklum móð. Hún féll hins vegar fyrir hjólreiðunum og æfir úti í öllum veðrum. Hún segir kúltúrinn í kringum sportið jákvæðan og skemmtilegan. „Ég skráði mig í hjólreiðafélagið Tind sem er frábær félagsskapur. Mín upplifun af sportinu er sú að í því er allskonar fólk með allskonar bakgrunn. Fólk sem er á mismunandi forsendum að hjóla, hvort sem það vill æfa stíft eða hjóla ánægjunnar vegna, getur komið saman í þessu. Það er svo frábært að hjóla í hóp, skemmtilegt og hvetjandi.“Hjólað kringum ÞingvallavatnRB Classic fer fram þann 30 ágúst en það er síðasta götuhjólamót sumarsins og síðasta bikarmótið. Hjólað er í kringum Þingvallavatn og keppt í tveimur vegalengdum, 127 km og 65 km. Björk lætur sig ekki vanta en hún tók einnig þátt í fyrra. „Ég prófaði þennan hring síðasta haust og hann er ótrúlega skemmtilegur, umhverfið stórkostlegt,“ segir Björk. „Hluta leiðarinnar er hjólað á möl, sem gefur keppninni ákveðið tvist og bætir í spennuna. Ég held að fæstir geri sér grein fyrir því hvað það er í raun hægt að bjóða götuhjólinu upp á. Þau þola þetta vel og gott betur.“ Er þetta fyrir hvern sem er? „Allir sem eru í ágætisformi ættu að ráða við þennan hring,“ segir Björk. „Fólk mætir auðvitað bara á sínum eigin forsendum og setur sér sínar persónulegu áskoranir. Ég hvet sem flesta til að taka þátt, allavega hjóla einn hring ánægjunnar vegna.“ Skráning fer fram hér
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Fleiri fréttir Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Sjá meira