Guðjón stefnir á það spila fyrsta leikinn með Stjörnunni á móti ÍBV 26. júlí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2015 20:00 Guðjón Baldvinsson í leik með Nordsjælland. Vísir/Getty
Stjörnumenn eru að endurheimta einn af fótboltasonum félagsins því Íslandsmeistararnir eru að kaupa Guðjón Baldvinsson frá danska liðinu Nordsjælland eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld og fyrst var greint frá á vefsíðunni Fótbolti.net. Guðjón Baldvinsson er uppalinn hjá Stjörnunni en hefur ekkert spilað með félaginu í tæp átta ár eftir að hafa reynt fyrir sér hjá bæði KR og sem atvinnumaður í Svíþjóð og Danmörku. Vísir hefur fengið það staðfest að Guðjón sé á leiðinni í Garðabæinn en það á enn eftir að ganga frá öllum pappírum og því ólíklegt að Guðjón nái næstu leikjum Stjörnuliðsins. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Vísis stefnir Guðjón sjálfur á því að spila fyrsta leikinn sinn á móti ÍBV á Samsung vellinum sunnudaginn 26. júlí næstkomandi. Stjörnumenn eru nýkomnir heim eftir Meistaradeildarleik á móti Celtic í Glasgow í gærkvöldi og liðið mætir síðan Skagamönnum í Garðabænum á laugardaginn. Seinni leikurinn við Celtic er síðan á Samsung vellinum miðvikudaginn 22. júlí en Guðjón er ekki löglegur í þessa umferð í Meistaradeildinni. Guðjón Baldvinsson hefur aldrei leikið með Stjörnunni í Pepsi-deildinni en hann á að baki 54 leiki með KR í efstu deild frá 2008 til 2011. Síðasti mótsleikur Guðjóns í Stjörnubúningnum var í 1. deildinni á móti Leikni 18. september 2007 en nái Guðjón ekki Eyjaleiknum spilar Stjörnuliðið næst í Pepsi-deildinni við Leikni 5. ágúst næstkomandi.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Stjarnan að kaupa Guðjón Baldvinsson frá Nordsjælland Guðjón Baldvinsson er á leiðinni aftur heim til Íslands og mun spila með Stjörnunni í seinni umferð Pepsi-deildar karla en þetta er mikilli liðstyrkur fyrir Garðabæjarliðið. 16. júlí 2015 18:43 Mest lesið Skýrsla um Brynjar Karl: Geri tilraunir með börn og skorti fræðilegan grunn Körfubolti Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Körfubolti TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Íslenski boltinn Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ Íslenski boltinn „Þetta er hreinn og klár glæpur“ Körfubolti Þurftu að hætta keppni til að tryggja öryggi keppenda Sport Laugardalsvöllur tekur lit Fótbolti Mesta rúst í sögu NBA Körfubolti Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Enski boltinn Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Telma mætt aftur með gullhanskann í Breiðablik Fagnaði tvítugsafmæli í gær og lánaður til FH í dag Stærsti sigur KR á ÍA í deildarleik Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu Laugardalsvöllur tekur lit „Jæja Heimir, þú verður að hjálpa mér að enda þetta vel“ Draumur Brassa um Ancelotti að rætast Sjáðu vítin á Hlíðarenda, skrautleg mörk í Garðabæ og umdeilt mark Fram TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu „Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“ Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ „Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ Uppgjörið: Fram - Afturelding 3-0 | Mosfellingum kippt niður á jörðina Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-3 | Gott gengi Eyjamanna heldur áfram Dagur Örn sagður á leið til FH Leiksigur Wright vekur lukku Sjáðu mörkin: Endurkoma Stjörnunnar og mörkin hjá Val og FH Vilja henda Rüdiger úr landsliðinu eftir æðiskastið Fá loks að halda sigrinum sem þrjú lið mótmæltu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision María hjálpaði Arnari mikið: „Þá næ ég kannski aðeins að toga hann til baka“ Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Sjáðu markaveislu KR og rothögg KA gegn FH Sviptir hulunni af dularfullu dollunni Lið Hákonar hefur grætt mest á leikmannasölum í allri Evrópu „Þetta er fallegasti klúbbur í heimi“ „Kom bara í hörkustandi inn í þennan leik“ Sjá meira
Stjarnan að kaupa Guðjón Baldvinsson frá Nordsjælland Guðjón Baldvinsson er á leiðinni aftur heim til Íslands og mun spila með Stjörnunni í seinni umferð Pepsi-deildar karla en þetta er mikilli liðstyrkur fyrir Garðabæjarliðið. 16. júlí 2015 18:43