Helgi Valur leggur skóna á hilluna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2015 08:50 Helgi Valur í leik með AIK. vísir/getty
Fótboltamaðurinn Helgi Valur Daníelsson hefur lagt skóna á hilluna en þetta kemur fram á heimasíðu AGF í dag. Helgi, sem er 33 ára, lék með AGF á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni. „Við höfum verið ánægðir með framlag Helga en við skiljum vel að hann vilji fara aftur heim til fjölskyldu sinnar,“ sagði íþróttastjóri AGF, Jens Andersson. Þjálfari liðsins, Morten Wieghorst, hrósaði Helga einnig fyrir hans framlag til AGF. „Helgi var mikilvægur hluti af liðinu. Hann glímdi við meiðsli en lagði sig alltaf fram og reynsla hans nýttist okkur vel,“ sagði Wieghorst um Helga sem lék 23 leiki með AGF og skoraði eitt mark. Helgi hóf feril sinn með Fylki í Árbænum og lék alls 68 leiki með liðinu í efstu deild. Hann gekk í raðir Peterborough á Englandi 1999 en kom aftur heim til Fylkis fjórum árum síðar. Helgi fór svo aftur út í atvinnumennsku 2006 þegar hann gekk til liðs við sænska liðið Östers. Hann lék einnig með Elfsborg, Hansa Rostock, AIK og Belenenses í Portúgal á ferlinum. Helgi lék 33 A-landsleiki fyrir Íslands hönd, þann síðasta gegn Belgíu í nóvember á síðasta ári.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Sjá meira