Vill hleypa fjölmiðlamönnum inn í klefann hjá Rúnari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2015 22:30 Rúnar Kristinsson. Vísir/EPA
Torgeir Bjarmann, íþróttastjóri hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Lilleström, vill taka upp gamla siði í samskiptum við blaðamenn en Íslendingurinn Rúnar Kristinsson tók við þjálfun Lilleström-liðsins fyrir þetta tímabil. Norska blaðið Verdens Gang segir frá þessum áformum Bjarmann og Lilleström og Rúnar gæti því átt vona á fréttaþyrstum blaðamönnum inn í klefann sinn á næstunni. Blaðmönnum og ljósmyndurum var hent út úr búningsklefum norsku félaganna fyrir tíu árum og hafa undanfarin áratug þurft að taka öll sín viðtöl á sérstökum blaðamannasvæðum fyrir utan klefana. Torgeir Bjarmann var áður fyrirliði Lilleström liðsins en hann þekkir vel til hvernig þetta var áður fyrr í samskiptum leikmanna og blaðamanna. Rúnar Kristinsson sjálfur var líka leikmaður íslenska landsliðsins þegar íslenskir blaðamenn fengu aðgengi að leikmönnum í búningsklefanum eftir leiki en líkt og í Noregi breyttist það í tímanna rás. Bjarmann er á því að þessi breyting á aðgengi fjölmiðlamanna þýði mun ferskari og áhugaverðari viðtöl við leikmenn og að blaðamönnunum sé alveg treystandi fyrir að spyrja leikmenn út úr á þeirra allra heilagasta stað á vellinum. Lilleström gæti samt verið eina liðið til að taka upp fyrri siði því Verdens Gang segir frá því að Rosenborg ætli ekki að opna klefann fyrir blaðamönnum í leit að viðtölum við leikmenn.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Enski boltinn Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin heldur áfram Sport Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Sjá meira