Selfyssingar missa Þuríði til Fylkis Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2015 16:44 Þuríður Guðjónsdóttir gerði tveggja ára samning við Fylki. Mynd/Handknattleiksdeild Fylkis.
Þuríður Guðjónsdóttir mun spila með Fylkisliðinu í Olís-deild kvenna í handbolta á næsta tímabili en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá handknattleiksdeild Fylkis. Þuríður, sem er nítján ára, hefur leikið með uppeldisfélagi sínu á Selfossi allan sinn feril. Hún hefur leikið með öllum unglingalandsliðum Íslands og hefur verið lykilmaður í liðum 3.flokks og meistaraflokks á Selfossi undanfarin misseri. Þuríður er hörku skytta sem getur spilað allar stöður fyrir utan. Hún þekkir vel til í Árbænum, en lék undir stjórn Halldórs Stefáns Fylkisþjálfara á sínum yngri árum á Selfossi ásamt því sem hún hefur spilað með Theu Imani í yngri landsliðum Íslands. „Mér líst vel á að vera komin í Árbæinn. Hér eru spennandi tímar framundan, ég þekki aðeins til stelpnanna í liðinu og líst mjög vel á þær og hlakka til að vera hluti af hópnum. Ég hlakka líka til að vinna aftur með Halla þjálfara, en ég hef trú á því að hjá honum geti ég bætt mig enn frekar. Eftir að ég fór á fund með Fylki leist mér vel á markmið félagsins til næstu ára, við stefnum mjög hátt og ég hef trú á því að það muni ganga upp. Þá er umgjörðin í kringum liðið mjög spennandi, það er mjög flott fólk í kringum þetta eins og Kjartan formaður, Jóhannes Lange og fleiri," segir Þuríður í fréttatilkynningu frá handknattleiksdeild Fylkis.
Olís-deild kvenna Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Sjá meira