Humarpizza með klettasalati og geitaostapizza með aspas Eva Laufey Hermannsdóttir skrifar 24. apríl 2015 16:15
Samverustundir með fjölskyldu minni og vinum skipta mig miklu máli. Ég nýt þess að fá góða gesti í mat á sumrin og hvað þá ef við getum setið úti á palli og spjallað fram eftir kvöldi. Það sem nýtur mikilla vinsælda í mínu eldhúsi á sumrin er pizza. Einföld, ítölsk pizza með góðu áleggi. Það góða við pizzur er að þær eru fjölbreyttar. Mér finnst gaman að bera fram mismunandi pizzur og það er hægt að prófa sig áfram.Hér er uppskrift úr síðasta þætti Matargleði Evu, en þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum.Ítalskur pizzabotn240 ml volgt vatn (mikilvægt að vatnið sé volgt)2 ½ tsk þurrger1 msk hunang2 tsk salt2 msk olía400 – 450 g hveiti (gæti þurft meira en minna)Aðferð: Blandið volgu vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki yfir skálina og leyfið gerinu að leysast upp í rólegheitum, eða í 7-10 mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni þá er gerblandan tilbúin. Hellið gerblöndunni í hrærivélaskál og bætið öllum hráefnum saman við, það er góð regla að bæta hveitinu smám saman við. Látið hnoðast í vélinni í 6 – 10 mínútur eða þar til deigið er orðið í laginu eins og kúla, einnig á það ekki að vera klístrað. Setjið viskastykki yfir hrærivélaskálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund eða þar til þar hefur tvöfaldast að stærð.Hvítlauksolía3 dl ólífuolía5 hvítlauksrif1 tsk gróft saltAðferð: Pressið hvítlauk og blandið honum saman við saltið, hellið olíunni og setjið hvítlaukinn í krukku. Lokið krukkunni og hristið vel saman.Pizzasósa1 msk ólífuolía1 laukur, grófsaxaður2 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir500 ml tómata passataHandfylli af ferskri, smátt saxaðri basilíkuSalt og nýmalaður piparAðferð: Hitið laukinn í olíunni þar til hann mýkist og verður glær. Bætið hvítlauknum, tómatapassata, basilíku og salti og pipar saman við og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.HumarpizzaHvítlauksolía, magn eftir smekk300 g skelflettur humar, skolaður og þerraðurKirsuberjatómatar, skornir í tvennt1 kúla mozzarella osturSalt og nýmalaður piparKlettasalat, magn eftir smekkParmesan ostur , magn eftir smekkAðferð: Hitið ofninn í 200°C. Fletjið deigið út og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið deigið með hvítlauks- og raðið humrinum og tómötunum ofan á. Kryddið með salti og pipar og stráið ostinum yfir. Bakið í 12 – 18 mínútur eða þar pizzan er orðin gullinbrún. Þegar pizzan er komin út úr ofninum er klettasalati bætt ofan á hana og parmesan osti sáldrað yfir.
Eva Laufey Humar Pítsur Uppskriftir Mest lesið Chuck Norris er látinn Bíó og sjónvarp Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Lífið Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Lífið Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Lífið Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Menning Misheppnaður mömmuleikur Gagnrýni Ástrós og Adam eiga von á öðru Lífið Magnús Hlynur í Efstaleitið Lífið Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Menning Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Sjá meira