Heilluð af Comma 26. september 2014 15:30
Sjónvarpskonan Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, var á heimavelli í glæsilegri verslun þýska tískurisans Comma í Smáralind þar sem stíllinn er kvenlegur, klassíkur, elegant og á góðu verði. „Stíllinn í Comma er klassískur og kvenlegur og alltaf tímalaus og elegant burtséð frá nýjustu tískustraumum. Ég pæli frekar lítið í tískunni en langar að vera klassísk í klæðaburði og þess vegna höfðar margt til mín sem fæst í Comma,“ segir Rikka sem fór í búðarráp í nýrri verslun þýska tískurisans Comma í Smáralind. „Ég hafði ekki fyrirfram gert mér í hugarlund hvernig upplifun það væri að kaupa sér föt í Comma en þar var yndislegt andrúmsloft og stimamjúkt starfsfólk sem stjanaði við mig og veitti frábæra þjónustu. Það þekkir vörurnar greinilega vel og maður fær heiðarlega ráðgjöf um fataval, snið og litasamsetningar sem klæða mann hvað best.“ Rikka segir allar konur geta fundið sér falleg klæði við hæfi í Comma. „Ég var hrifin af því hversu ríkulegt úrval er af flottum grunnfötum sem hægt er að nota dags daglega og púsla endalaust saman við til að skapa nýtt útlit. Það finnst mér hrífandi því maður er oft og iðulega í vandræðum með að finna hversdagslegar en jafnframt flottar fatasamsetningar.“ Í Comma fæst einnig litríkt úrval af ekta dúnúlpum og dúnvestum sem kölluðu á Rikku. „Úlpurnar voru ótrúlega vandaðar og flottar og einnig dýrindis sjöl sem gott er að henda yfir sig í haustkuldanum. Það var líka gaman að finna gæðin í fatnaði Comma því ég er kröfuhörð á efni og góðan saumaskap,“ segir Rikka sem fann sér margt fallegt til að klæðast í Comma. „Comma á heillandi fatnað á góðu verði fyrir konur á öllum aldri því allar þurfum við föt til skiptanna. Þar er ótal margt freistandi fyrir minn aldur en einnig yngri og eldri konur. Þá er augljóst að fötin í Comma renna út eins og heitar lummur og maður þarf að vera snöggur til að ná sér í það nýjasta. Á sama tíma er sífellt bætt við nýjum og flottum vörum og því úr nógu af undurfögrum klæðnaði að velja.“
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira