Dansandi myndir á hverri opnu Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 22. september 2014 10:30 Freyja Dís
Bækur: Freyja Dís sem vildi BARA dansa og dansa Birgitta Sif Mál og menning Sagan um Freyju Dís er önnur bók Birgittu Sifjar sem kemur út á íslensku, en hún er höfundur bæði mynda og texta. Hún skaust fram á sjónarsviðið á Íslandi með látum með fyrstu bók sinni Óliver fyrir tveimur árum. Sú bók sló rækilega í gegn enda sérstaklega vönduð, bæði hvað útlit og innihald varðar. Nú svarar hún kalli aðdáenda sinna með bókinni Freyja Dís sem vildi BARA dansa og dansa. Sagan er hugljúf og segir frá Freyju Dís, lítilli stelpu sem hefur gaman af því að dansa. En það er sá hængur á að Freyja litla er afskaplega feimin og getur ómögulega dansað fyrir framan aðra. Söguþráðurinn er nokkuð viðburðasnauður, en myndirnar bæta það snarlega upp því þar er nóg að gerast. Bókin kom fyrst út á ensku hjá Walker Books-forlaginu í London og það verður að viðurkennast að liggja hefði mátt lengur yfir íslenska textanum. Jafnvel þótt íslenska sé móðurmál höfundar er málfæri víða óeðlilegt og augljóst að textinn hefur verið þýddur nokkurn veginn beint úr ensku. Hugsanlega hefði verið betra að láta einhvern annan sjá um þýðinguna, einhvern utanaðkomandi sem kemur ferskur að textanum. Myndirnar eru hins vegar stórglæsilegar, þar þarf ekkert að spara stóru orðin. Þær eru vandaðar og stútfullar af smáatriðum svo bæði börn og fullorðnir geta gleymt sér á hverri einustu opnu. Textinn er knappur og einfaldur svo bókin virkar bæði sem lestrarbók fyrir krakka sem eru að byrja að lesa, sem og upplestrarbók fyrir svefninn. Þar sem hver opna er svo ríkulega myndskreytt miðað við stuttan texta er líklegt að bókin verði lesin aftur og aftur. Þótt sagan sé ekki æsispennandi er hún sannarlega hvetjandi fyrir litla, feimna listamenn.Niðurstaða: Í heildina séð er bókin falleg, frábærar myndir og hugljúfur boðskapur, þótt hugsanlega hefði mátt vanda betur þýðingu textans úr ensku yfir á íslensku.
Gagnrýni Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fleiri fréttir Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira