Notaleg stund í Kristskirkju Jónas Sen skrifar 12. júlí 2014 09:30 Kristskirkja. „Ég hvet fólk til að setjast inn í Kristskirkju í hádeginu á miðvikudögum og slaka á í miðju annríki dagsins,“ segir Jónas Sen. Fréttablaðið/GVA
Tónlist: Orgelandakt, hádegistónleikaröð Douglas A. Brotchie lék verk eftir Böhm, Corigliano og Kurtág. Miðvikudagur 9. júlí. Orgelandakt er nafnið á tónleikaröð sem haldin er árlega í Landakotskirkju yfir sumartímann. Tónleikarnir eru á miðvikudögum í hádeginu og taka hálftíma. Eins og nafn raðarinnar ber með sér er um eins konar hugleiðslustund að ræða, sem er leidd af presti, séra Jakobi Rolland. Þetta eru því meira en bara venjulegir hádegistónleikar. Ég hef verið á tónleikum í þessari röð þar sem ekki hefur verið nægilega hugað að því að tónlistin passi inn í ramma andaktar. En sú var ekki raunin nú. Tónleikarnir byrjuðu á fremur glaðlegu verki, partítu eftir Georg Böhm (Jesu, du bist allzu schöne), en svo varð tónlistin innhverfari og hentaði því prýðilega til íhugunar. Partítan eftir Böhm var fallega leikin af organistanum Douglas A. Brotchie, en hann er Skoti og hefur verið búsettur hér í 30 ár. Hljómurinn í orgelinu var mjúkur vel framan af, en svo tók meiri glans við. Brotchie spilaði skýrt og yfirvegað, allar nótur voru á sínum stað. Takturinn var jafn og agaður, jafnvægi á milli radda var hæfilegt og hnitmiðað. Hraðar nótnastrófur voru tærar og nákvæmar. Flutningurinn var því sannfærandi. Það var skemmtileg stígandi í túlkuninni, allt frá mýktinni í byrjun til skærari áferðar undir lokin. Óneitanlega var hápunkturinn flottur. Hitt á efnisskránni kom líka ágætlega út. Hið fyrra var O God of Love, umritun úr óperunni Ghosts of Versailles eftir John Corigliano. Þetta er samtímatónlist og talsvert annar bragur á henni en barokkverkinu sem við heyrðum fyrst. Þarna var hunangssæt laglína skreytt sérlega safaríkum, en jafnframt þokukenndum hljómum. Það var glæsilega útfært af Brotchie. Laglínan og hljómarnir voru fagurlega bundnir, heildarhljómurinn var trúverðugur og unaðslegur áheyrnar. Útkoman var nánast ekki af þessum heimi. Í restina lék Brotchie fjögur smástykki úr Jatekok VI, þ.e. sjötta bindinu úr „leikjum“ eftir ungverska samtímatónskáldið György Kurtág. Eftir því sem ég best veit eru stykkin upphaflega samin fyrir píanó, eða píanódúett og þeim svipar á margan hátt til Microcosmos eftir Bartók. Brotchie lék verkin með réttum dramatískum tilburðum, af tæknilegu öryggi og fagmennsku. Vissulega var tónlistin ekkert sérlega aðgengileg, en hún var innhverf og hóflega löng, sem átti sérlega vel við hér. Þetta var alveg rétti endirinn á dagskránni. Ég hvet fólk til að setjast inn í Kristskirkju í hádeginu á miðvikudögum og slaka á í miðju annríki dagsins.Niðurstaða: Fallegur orgelleikur, vel valin efnisskrá.
Gagnrýni Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Fleiri fréttir Vók Ofurmenni slaufað Gamli er (ekki) alveg með'etta Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Sjá meira