Kristen einni stoðsendingu frá fjórfaldri tvennu í stórsigri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2014 18:33 Kristen Denise McCarthy. Vísir/Valli
Íslandsmeistarar Snæfells eru komnar áfram í átta liða úrslit í Powerade-bikars kvenna eftir 91 stigs sigur á 1. deildarliði Fjölnis, 130-39, í Stykkishólmi í kvöld. Fjórir leikmenn Snæfellsliðsins fóru yfir tuttugu stiga múrinn í leiknum, sex skoruðu fimmtán stig eða meira og hin bandaríska Kristen Denise McCarthy var aðeins einni stoðsendingu frá fjórfaldri tvennu en hún endaði leikinn með 26 stig, 25 fráköst, 10 stolna bolta og 9 stoðsendingar. Systurnar Berglind Gunnarsdóttir (22 stig og 7 sóknarfráköst á 23 mínútum) og Gunnhildur Gunnarsdóttir (21 stig og 10 stoðsendingar) voru atkvæðamiklar en fyrirliðinn Hildur Sigurðardóttir vantaði líka bara tvær stoðsendingar í þrennuna því hún var með 21 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar. María Björnsdóttir (18 stig) og Rebekka Rán Karlsdóttir (15 stig) voru einnig í hópi þeirra sem skoruðu fimmtán stig eða meira fyrir Snæfellsliðið í kvöld. Mone Laretta Peoples skoraði 23 stig fyrir Fjölni eða 59 prósent af stigum liðsins. Snæfell vann fráköstin 70-33, stal 28 boltum og átti 42 stoðsendingar. Snæfell vann fyrsta leikhlutann 33-9 og var 43 stigum yfir í hálfleik, 65-22.Snæfell-Fjölnir 130-39 (33-9, 32-13, 27-3, 38-14)Snæfell: Kristen Denise McCarthy 26/25 fráköst/9 stoðsendingar/10 stolnir, Berglind Gunnarsdóttir 22/8 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 21/10 stoðsendingar/5 stolnir, Hildur Sigurðardóttir 21/10 fráköst/8 stoðsendingar, María Björnsdóttir 18/5 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 15/5 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5, Anna Soffía Lárusdóttir 2/4 fráköst.Fjölnir: Mone Laretta Peoples 23/4 fráköst, Sigrún Anna Ragnarsdóttir 8, Telma María Jónsdóttir 3/5 fráköst, Sigrún Elísa Gylfadóttir 2/6 fráköst, Katla Marín Stefánsdóttir 2/4 fráköst, Margrét Eiríksdóttir 1.
Dominos-deild kvenna Íslenski körfuboltinn Mest lesið Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Sjá meira