Guðlaugur tryggði sigurinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. september 2014 19:26 Guðlaugur fagnar marki í leik með NEC Nijmegen í Hollandi. Vísir/Getty
Guðlaugur Victor Pálsson hélt upp á nýjan fjögurra ára samning við Helsingborg með því að tryggja liðinu 2-1 sigur á Åtvidaberg í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Markið skoraði hann á 67. mínútu en staðan í hálfleik var 1-1. Þetta var fyrsta mark Guðlaugs í Svíþjóð en liðið er í áttunda sæti með 36 stig. Arnór Smárason kom inn á sem varamaður í liði Helsingborg á 83. mínútu. Brommapojkarna tapaði enn einum leiknum í kvöld er liðið laut í lægra hald fyrir Halmstad, 3-0, á heimavelli. Liðið féll í síðustu umferð en það er langneðst í sænsku deildinni með níu stig - sautján stigum á eftir næstu liðum, Gefle, Falkenberg og Norrköping.Kristinn Jónsson, sem hefur ekki spilað með liðinu síðan um miðjan ágúst, var ekki með Brommapojkarna í dag. Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson spiluðu allan leikinn með Halmstad sem er í ellefta sæti með 33 stig.Skúli Jón Friðgeirsson var í byrjunarliði Gefle sem tapaði fyrir Örebro á heimavelli, 2-1, en þetta var þriðja tap liðsins í röð. Rúnar Már Sigurjónsson og Jón Guðni Fjóluson voru báðir í byrjunarliði Sundsvall sem vann Husqvarna, 2-1. Liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 51 stig, jafn mörg og Hammarby og einu á eftir toppliði Ljungskile.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira