Viðar er sex mörkum frá markametinu í Noregi 15. september 2014 10:00 Viðar Örn hefur verið algjörlega óstöðvandi á þessu tímabili. mynd/valerenga
Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson er á hraðleið að slá markametið í norska boltanum. Viðar skoraði þrennu í gær í 4-1 sigri Vålerenga á Haugesund. Viðar Örn er þar með búinn að skora 24 mörk í 22 leikjum í deildinni. Markametið er 30 mörk en það setti Rosenborg-goðsögnin Odd Iversen árið 1968. Næstu menn á metlistanum eru líka fyrrum leikmenn Rosenborg. Harald Martin Brattbak skoraði 28 mörk árið 1996 og Sigurd Rushfeldt skoraði 27 mörk tveim árum síðar. „Ég hafði ekki hugmynd um að ég væri að nálgast metið. Takk fyrir að segja mér frá því," sagði Viðar Örn léttur við TV2 eftir leikinn í gær. Það eru sjö umferðir eftir af norsku deildinni og Viðar Örn þarf sex mörk til þess að jafna markametið. „Það er vel mögulegt að skora sex mörk í sjö leikjum," sagði Selfyssingurinn brattur. Iversen skoraði sín 30 mörk í aðeins 18 leikjum en hann skoraði meðal annars sex mörk í 7-2 sigri á Vålerenga. Aftur á móti hefur enginn skorað svona mikið í norsku deildinni á þessari öld. Thorstein Helstad skoraði 22 mörk árið 2007 en Viðar Örn er þegar búinn að slá það met. Selfyssingurinn er einnig búinn að bæta félagsmet hjá Vålerenga. Enginn leikmaður í sögu félagsins hefur skorað eins mörg mörk á einni leiktíð. Metið var 23 mörk og það setti Jörn Andersen árið 1985.
Fótbolti á Norðurlöndum Tengdar fréttir Viðar með þrennu fyrir Vålerenga Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að fara á kostum í norsku úrvalsdeildinni. 14. september 2014 18:14 Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira
Viðar með þrennu fyrir Vålerenga Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að fara á kostum í norsku úrvalsdeildinni. 14. september 2014 18:14