Volvo S90 gegn Audi, BMW og Benz Finnur Thorlacius skrifar 18. september 2014 09:59 Volvo Concept Coupe.
Volvo mun setja á markað nýjan stóran fólksbíl eftir 2 ár sem keppa á við BMW 5-línuna, Audi A6 og Mercedes Benz E-Class bílana. Þessi bíll mun fá heitið Volvo S90. Volvo S90 mun ekki bara fá sama undirvagn og er í hinum nýkynnta Volvo XC90 jeppa, heldur fjölmargt annað. Ekki síst á það við vélakostina sem í bílnum bjóðast. Þar geta kaupendur valið á milli 222 hestafla dísilvélar og 240, 302 og 400 hestafla bensínvéla sem allar eru þó aðeins með 2,0 lítra sprengirými. Volvo S90 mun erfa útlit sitt að miklu leiti frá Volvo Concept Coupe bílnum sem kynntur var á bílasýningunni í Frankfurt í fyrra og þótti ægifagur. Þó mun fólk greina margt frá nýja XC90 jeppanum, meðal annars grillið og Þórshamarsframljósin. Einnig verður margt í innréttingu nýs Volvo S90 eins og í XC90 jeppanum. Volvo hefur boðið S80 bílinn til langs tíma í þessum stærðarflokki, en hann hefur ekki selst í viðlíka magni og þýsku lúxusbílarnir áðurnefndu. Volvo vonast til þess að þessi nýi S90 bíll geti hoggið væn skörð í sölu þýsku bílanna. Það sem helst gæti hjálpað til þess eru einstaklega sparsamar, umhverfisvænar og öflugar vélar sem Volvo framleiðir nú og býður í þessum nýja bíl. Volvo S90 kemur á markað árið 2016 og þá af árgerð 2017.
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent