Á fjórða hundrað hafa fallið Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. júlí 2014 13:35 VÍSIR/AFP
Alls hafa rúmlega 330 manns fallið í átökunum sem nú standa yfir fyrir botni Miðjarðarhafs. Ekkert lát virðist vera á dauðsföllunum en í morgun létust meðal annars fimm meðlimir Zuweidi fjölskyldunnar, þar af tvær stelpur. Þær voru tveggja og sex ára gamlar. Þrír Ísraelsmenn hafa fallið í óeirðunum. Tveir þeirra voru óbreyttir borgarar en sá þriðji var hermaður sem féll vegna slysaskots ísraelsks hermanns. Alls hafa tæplega 2400 Palestínumenn slasast það sem af er átökunum. Það gera liðlega 200 manns á dag frá því að loftárásir Ísraelsmanna hófust í upphafi þessa mánaðar. 40 þúsund manns höfðu leitað skjóls í flóttamannabúðum á vegum Sameinuðu þjóðanna í gær og hefur sú talað hækkað hratt á liðnum dögum. Spilar þar landhernaður Ísraelsmanna stóra rullu en á föstudag hófu ísraelskar hersveitir innrás á Gasa-svæðið með það að markmiði að eyðileggja jarðgöng sem Hamasliðar hafa grafið undir landsvæði Ísraels. Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, heimsótti átakasvæðið í dag. Reynir hann nú að leggja lóð sín á vogaskálarnar til að stemma stigu við vargöldinni.video platformvideo managementvideo solutionsvideo player
Gasa Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent „Svívirðileg svik“ Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Sjá meira