Toyota söluhæst í ár Finnur Thorlacius skrifar 25. apríl 2014 15:35 Toyota Aygo árgerð 2015.
Keppnin milli bílarisanna þriggja, Toyota, General Motors og Volkswagen, um hvert þeirra selur flestu bílana verður æ jafnari, en Toyota heldur enn fyrsta sætinu eftir fyrstu 3 mánuði ársins. Toyota seldi 2,58 milljónir bíla þennan fyrsta ársfjórðung en GM og Volkswagen um 2,4 milljónir bíla. Tölurnar frá Volkswagen innihalda þó ekki sölu á MAN og Scania trukkum, en tölurnar frá Toyota innihalda Hino trukka og Datsun bíla. Síðasta ár var gjöfult fyrir Toyota en fyrirtækið hagnaðist um 2.070 milljarða króna og hefur hagnaður Toyota aldrei verið meiri. Hlutabréf í Toyota hækkuðu um 60% á síðasta ári. Búist er við því að Toyota haldi titlinum stærsti bílaframleiðandi heims að minnsta kosti fram til 2016 eða 2017, en eftir það er hætt við því að Volkswagen taki toppsætið af Toyota, enda hefur það verið yfirlýst stefna Volkswagen í nokkur ár. Toyota seldi 9,98 milljón bíla í fyrra, Volkswagen 9,73 og GM 9,71. Spáð er 10,32 milljón bíla sölu Toyota í ár og forsvarsmenn Volkswagen segja að líklega fari salan yfir 10 milljónir bíla þar á bæ. Hlutabréf í Toyota hækkuðu um 60% á síðasta ári.
Mest lesið Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Innlent Lést í sprengingunni Innlent Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Veður Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Innlent Íhugar að draga úr hernaði í Íran Erlent Skammt stórra högga á milli Veður Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent