28 milljóna króna tap á rekstri KSÍ 10. febrúar 2014 09:42 Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, og landsliðsþjálfararnir Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck.
Tap var á rekstri Knattspyrnusambands Íslands upp á 28 milljónir króna á síðasta ári en sambandið birtir ársreikning sinn í dag. Rekstarkostnaður sambandsins mun hærri en gert var ráð fyrir en hann nam um 928 milljónum króna. Ástæður þess eru sagðar vera helst aukinn kostnaður við landsliðsverkefni. Íslenska kvennalandsliðið tók þátt á Evrópumótinu í Svíþjóð í sumar og þá komst karlalandsliðið í umspil um sæti á HM í fyrsta skipti í sögunni. Rekstrarhagnaður ársins nam tæpum 44 milljónum króna, en áætlanir gerðu ráð fyrir 60 milljóna króna hagnaði. Styrkir og framlög til aðildarfélaga á árinu námu 85 milljónum króna vegna barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira. Samþykkt áætlun gerði ráð fyrir styrkjum og framlögum að fjárhæð 78 milljónum. Að teknu tilliti til styrkja og framlaga til aðildarfélaga var því tap á rekstinum að upphæð 28 milljónir króna. Á vef KSÍ kemur fram að fjárhags- og eignarstaða sambandsins sé traust og lausafjárstaða góð. Handbært fé lækkar þó á milli ára en það var í árslok 2013 um 299 milljónir króna.Ársreikningur KSÍ.
Íslenski boltinn Mest lesið Í beinni: Stjarnan - Grindavík | Upp á líf og dauða Körfubolti Leik lokið: Breiðablik - KR 3-3 | Stórleikurinn stóðst væntingarnar Íslenski boltinn Kristín Birna í stað Vésteins sem verður ráðgjafi Sport Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Allt undir í oddaleik: Sjaldan mætt liði á Íslandi með jafn mikil einstaklingsgæði Körfubolti Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf „Gengur aldrei einn í Liverpool en kannski gerir þú það i Madrid“ Enski boltinn Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti Í beinni: Víkingur - Fram | Hörkuleikur í Fossvogi Íslenski boltinn „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Leik lokið: Afturelding - Stjarnan 3-0 | Nýliðarnir öflugir á heimavelli Leik lokið: Breiðablik - KR 3-3 | Stórleikurinn stóðst væntingarnar Valskonur ólíkar sér: Kallar eftir hungraðri Nadíu í stað Rhodes Sjáðu Flóka færa Val fyrsta tapið, ÍA í stuði og hvernig Vestri fór á toppinn Þorleifur snýr heim í Breiðablik Uppgjör: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Uppgjörið: ÍA - KA 3-0 | Skagamenn risu upp og Viktor fann markaskóna Uppgjörið: ÍBV - Vestri 0-2 | Vestramenn aftur á toppinn Sjáðu markaveislu Breiðabliks og FH og mörkin úr sögulegum sigri Fram „Við gátum ekki farið mikið neðar“ Uppgjörið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjarnan fyrst til að skora gegn Val FH-ingar kláruðu Akureyringa á korteri og jöfnuðu Blika á toppnum Leik lokið: Þróttur - Tindastóll 1-0 | Eina markið skorað úr fyrstu sókn leiksins Uppgjörið: Fram - FHL 2-0 | Fram nældi í sín fyrstu stig í nýliðaslagnum við FHL Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-0 | Meistararnir með markaveislu í sólinni „Þetta var ákvörðun sem ég þurfti að taka“ „Finnst þessir fyrstu tveir leikir hræðilegir“ Draumaendir Bjarka á ferlinum: „Loksins fann ég þjálfara sem virkilega skildi mig“ „Fannst ekkert gerast nema Fanndís væri að gera eitthvað“ „Hvað eru menn búnir að láta fífla sig út í?“ Vilja að Arna elti stóru systur: „Þær eru svakalegir íþróttamenn“ Sjáðu sjálfsmarkið sem skipti sköpum og fyrstu mörk Lífar Fylki og Keflavík spáð sigri í Lengjudeildunum Stokke í raðir Aftureldingar Bikarvörnin hefst gegn Fram „Held að Víkingar hafi keypt rangan framherja úr HK“ Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Stúkan um Stjörnuna: „Er algjört kjaftæði“ Sjá meira